• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

David Attenborough á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hinn heimsþekkti sjónvarpsmaður Sir David Attenborough, sem þekktastur er fyrir náttúrlífsþætti sína er sagður dvelja á Íslandi og að hann vinni að verkefni fyrir breska ríkisútvarpið BBC.
Fréttin kemur fram á mbl.is. Þar kemur einnig fram að framleiðslufyrirtæki Attenboroughs hafi staðfest veru hans á Íslandi í samtali við miðilinn.  Sagt er að framleiðslufyrirtækið True North komi að verkefninu  samkvæmt frétt Mbl. Björk Guðmundsdóttir vann með Attenborough árið 2012 við gerð heimildarmyndarinnar The nature of music.
Sir David Frederick Attenborough  er fæddur 8. maí 1926 og er enskur náttúrufræðingur og fjölmiðlamaður. Hann er best þekktur fyrir að semja og kynna Life sjónvarpsþættina þar sem hann fjallar um dýra- og plöntulíf jarðar. Hann hefur gefið út út fjöldann allan af fræðsluefni, aðallega fyrir sjónvarp en líka bækur.
Attenborough fæddist í Isleworth í vestur-London, en ólst upp í Leicester þar sem faðir hans var skólastjóri. Hann er miðjubarn og á tvo bræður. Foreldrar hans ættleiddu einnig tvær gyðingastúlkur í síðari heimsstyrjöld. Í æsku safnaði Attenborough steingervingum, steinum og öðrum náttúrufyrirbrigðum. Árið 1945 lærði hann jarðfræði og dýrafræði við Cambridge og hlaut gráðu í náttúruvísindum. Árið 1950 giftist Attenborough Jane Elizabeth Ebsworth Oriel ( hún lést árið 1997). Þau eignuðust tvö börn: Robert og Susan. Sama ár sótti hann um starf sem þáttastjóri í útvarpi BBC en var hafnað fyrst en ferilskráin vakti athygli og fékk hann stöðu þar árið 1952. Attenborough varð stjórnandi hjá BBC Two árið 1965 og fór ferðir til meðal annars Tansaníu og Indónesíu til að taka upp myndefni og kynna.
Attenborough hefur síðan gert ótal fræðsluþátta. Þáttaröðin Wildlife on One, á BBC One, gekk frá 1977 til 2005 og taldi 253 þætti. Þáttaröðin Life on Earth (1979) var sú viðamesta sem BBC hafði gert og olli straumhvörfum í fræðsluþáttagerð. Nýjasta kvikmyndatökutækni var beitt hverju sinni og nutu þættirnir gífurlegra vinsælda, ekki síst vegna þess smitandi áhuga sem Attenborough sýndi viðfangsefni sínu. Af nýlegum þáttum hefur Planet Earth(2006) notið vinsælda.
Attenborough hefur látið ýmisleg málefni til sín taka: Loftlagsmál, sólarorku og mannfjöldaþróun má helst nefna. Attenborough hefur verið í liði með m.a. Richard Dawkins um að banna kennslu sköpunarhyggju í breskum skólum.  Ýmsar dýrategundir lifandi og útdauðar hafa verið nefndar eftir honum.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?