Þorsteinn Guðmundsson fjallar um húmor í streymi hjá BHM
Þorsteinn Guðmundsson, leikari og verðandi sálfræðingur, fjallar um sögu húmors, hvaða hlutverki húmor gegnir í samskiptum okkar á milli og hvaða gildi húmor og hlátur hefur fyrir líðan og heilsu. Greint er frá fyrirlestrinum hjá BHM:
Föstudaginn 24. apríl kl. 12:00 í streymi á streymissíðu Bandalags háskólamanna.
Fyrirlesturinn verður aðgengilegur í tvo daga, frá föstudeginum 24. apríl til miðnættis laugardaginn 25. apríl 2020.
Umræða