Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhver þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hin sömu einnig beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is
Þótt myndin sé eilítið óskýr má ætla að hún geti gefið góða vísbendingu um hver maðurinn er.
Umræða