• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

Vélhjólaslys

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. júní 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglunni á Vestfjörðum barst tilkynning um vélhjólaslys sl. fimmtudag, á Svalvogavegi í Dýrafirði. Stjórnandi vélhjólsins var fluttur til aðhlynningar á Ísafirði, með beinbrot og önnur innvortis meiðsl. Hann var þó ekki talinn í lífshættu.

Þá barst tilkynning síðar sama dag um bílveltu á Vestfjarðavegi í nágrenni Skálaness. Tveir voru í bifrieðinni og voru þeir fluttir til Reykjavíkur til frekari skoðunar en annar þeirra slasaðist nokkuð.

Ökumaður var stöðvaður á Bildudalsvegi síðdegis á föstudag, og reyndist hann undir áhrifum áfengis auk þess að vera sviptur ökuréttindum.

Daginn áður var ökumaður stöðvaður í Bolungarvík og í framhaldi handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Blóðsýni voru tekin úr ökumönnunum og send til rannsóknar.

Lögreglumenn stöðvuðu einnig ökumann í Bolungarvík aðfaranótt sl. miðvikudags. Sá reyndi að villa á sér heimilidir en í ljós kom að viðkomandi var einungis 16 ára og því ekki með ökuréttindi. Farþegi í bifreiðinni kvaðst hafa verið ökumaður bifreiðarinnar fyrr um nóttina og leyft ökumanninum að aka bifreiðinni. Bæði eiga yfir höfði sér sekt vegna þessa en óheimilt er og refsivert að fela manni sem ekki hefur tilskilin réttindi, stjórn ökutækis.

Um kvöldmatarleytið á mánudag var tilkynnt um eld í hjólýsi við bæ í innanverðu Ísafjarðrdjúpi. Hjólhýsið brann til kaldra kola en enginn var í því þegar eldurinn kom upp. Eldurinn náði auk þess ekki að læsa sig í nærliggjandi hús.
8 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur sl. viku. Einn var mældur á 65 km hraða innanbæjar á Ísafirði þar sem 30 km hámarkshraði er leyfilegur.

EIns og lögreglan á Vestfjörðum kynnti nýverið, hefur verið tekið á málum er varða ólöglegar lagningu ökutækja. Sl. viku voru 23 eigendur ökutækja kærðir fyrir slíka lagningu ökutækja þeirra og eru það vonbrigði að ökumenn gæti ekki betur að því að leggja ökutækjum í samræmi við lög.

Enn er heilmikið svigrúm til bætinga á þessu sviði og rétt að halda í þá von að ökumenn nýti það almennt næstu misserin. Sekt við slíkum ólöglegum lagninum eru 20.000 kr og því ljóst að slíkri upphæð er betur varið í flest annað.

Nú fer daginn að stytta á ný þó svo að sumarnóttin verði áfram tiltölulega björt um allnokkra hríð og um að gera fyrir birtuunnendur að njóta til hins ýtrasta. Sumarnóttin er jú oft ansi falleg og kyrrsæl eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem lögreglumenn á næturvakt fyrir fáeinum nóttum reyndu að festa stemmninguna á minniskort, á leið sinni til Flateyrar.

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Vélhjólaslys

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Rannsókn á andláti

    358 deilingar
    Share 143 Tweet 90
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?