• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Um 10.000 umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. september 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Um 10.000 umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi hafa borist síðustu misserin

1.489 umsóknir hafa borist um alþjóðlega vernd á Íslandi það sem af er árinu 2024. Árið 2023 bárust alls 4.164 umsóknir og árið 2022 voru þær 4.520. Þau árin munar mestu um Úkraínubúa sem fá hér vernd á grunni fjöldaflótta.  Ef Úkraínubúar eru undanskildir sóttu 2.178 um vernd árið 2022, 2.547 árið 2023 og 535 það sem af er þessu ári.

Útlendingastofnun hefur afgreitt um 2.550 umsóknir á þessu ári:

 Málsmeðferð Fjöldi
Synjanir 2022 2023 2024
Vernd í öðru landi 167 231 82
Öruggt þriðja ríki 24 38 152
Forgangsmeðferð 9 16 9
Dublin 66 237 112
Efnismeðferð 125 965 1.080
Synjanir samtals 391 1.487 1.435
Veitingar
Efnismeðferð: Viðbótarvernd 958 233 65
Efnismeðferð: Vernd 110 119 70
Efnismeðferð: Mannúðarleyfi 65 61 86
Fjöldaflótti 2.322 1.556 866
Veitingar samtals 3.455 1.969 1.087
Annað
Umsókn vísað frá 0 18 29
Heildarafgreiðslufjöldi 3.848 3.474 2.551
Tafla 1. Afgreiðsla Útlendingastofnunar árin 2022, 2023 og 2024

Af þeim umsóknum sem Útlendingastofnun hefur afgreitt á árinu hafa 1.435 verið synjað, þ.e. um 56% umsókna. Árið 2023 var 1.487 umsóknum synjað (42%) og árið 2022 voru þær 391 (10%).

Kærunefnd útlendingamála hefur afgreitt 1.719 mál á árinu, þar af 905 efnismeðferðarmál, 151 Dyflinnarmál, 123 griðlandsmál (öruggt þriðja ríki) og 159 mál þar sem viðkomandi hefur alþjóðlega vernd í öðru ríki.

Aukinn brottflutningur

Til að styðja við það markmið að auka árangur í brottflutningi einstaklinga sem ekki hafa heimild til dvalar í landinu hafa Útlendingastofnun og heimfarar- og  fylgdardeild ríkislögreglustjóra sem annast framkvæmd brottflutninga og endursendinga verið efldar. Auk þess hafa verið gerðar breytingar á ferðastyrkjum og enduraðlögunarstyrkjum á grundvelli reglugerðar um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför. Markmiðið með breytingunum var meðal annars að skapa jákvæðan hvata fyrir umsækjendur um vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu til að snúa til síns heima. Af tölum að dæma virðast þessar breytingar haft þau áhrif sem að var stefnt.

Það sem af er þessu ári hafa 1.165 einstaklingar farið frá landinu, ýmist í sjálfviljugri heimför eða þvingaðri. Þetta er um 70% aukning, miðað við allt árið 2023. Þegar litið er yfir þróunina yfir árið sést að brottflutningur hefur aukist verulega eftir því sem líður á árið og er langt umfram það sem var árið áður.

Mynd 1. Fjöldi brottflutninga eftir mánuðum árin 2023 og 2024

Þvingaður brottflutningur hefur aukist um 36% á milli ára, bæði vegna verndarmála og annarra. Hjá Heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra liggja nú fyrir beiðnir um brottflutning 224 einstaklinga og um 140 slíkar beiðnir eru í vinnslu hjá Útlendingastofnun.

 

Þvingaður brottflutningur 2023 2024
Fylgd vegna verndarmála 117 157
Önnur fylgd 33 48
Tafla 2. Fjöldi þvingaðra brottflutninga árin 2023 og 2024

Álag á verndarkerfið hefur minnkað og fólk dvelur skemur eftir synjun meðal annars vegna þeirra breytinga sem voru gerðar til þess að fólk hverfi heim áður en frestur til sjálfviljugrar heimferðar er liðinn.

„Ég hef lagt á það mikla áherslu að standa vörð um verndarkerfið og ná tökum á málaflokki hælisleitenda, með áherslu á fækkun umsókna, styttri málsmeðferðartíma og aukinn árangur í brottflutningi þeirra sem ekki hafa leyfi til dvalar í landinu. Það er að ganga eftir og ljóst að aðgerðir stjórnvalda eru að skila árangri.“ Segir Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vistaður í fangaklefa eftir umferðaróhapp

    Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    136 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    147 deilingar
    Share 59 Tweet 37
  • Tvö umferðarslys – Ekið á tvöföldum hámarkshraða, svipting og sektir

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?