• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Framhald Verbúðarinnar í fæðingu á Alþingi

Sigurjón Þórðarson, alþingismaður skrifar

Gríðarlegir fjármunir eru í húfi!

Yfirmaður Verðlagsstofu skiptaverðs er boðaður á fund atvinnuveganefndar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. september 2025
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Munar 300% á verði á makríl úr sömu torfunni

Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks Fólksins skrifar

Á sumri sem leið höfðu þó nokkrir sjómenn á Norður og Austurlandi samband við mig sem voru á veiðum á makríl. Allir með tölu höfðu þann fyrirvara á upplýsingagjöfinni að gætt yrði trúnaðar og nafnleyndar.

Sjómennirnir voru einróma um að gríðarlegur munur væri á því verði sem greitt var fyrir makríl sem veiddur var úr sömu torfunni eftir því hvort aflanum var landað í Færeyjum eða til vinnslu í eigu útgerðar hér á landi.

Verðið var allt að 300 prósentum hærra í Færeyjum en það sem vinnsla í eigu útgerðarinnar greiddi hér á landi. Munaði þar allt að 200 krónum fyrir kílóið. Í framhaldinu leitaði ég staðfestingar á þessum verðmun og reyndist hann á rökum reistur.

Nokkurra milljarða króna tekjuskerðingar til sjómanna, ríkissjóðs og hafnarsjóða 

Áætlað hefur verið að þessi verðmunur hafi leitt til um nokkurra milljarða króna tekjuskerðingar til sjómanna á síðustu makrílvertíð. Það gefur augaleið að það munar um minna.

Þessi verðmunur leiðir einnig til þess að ríkissjóður og hafnarsjóðir sveitarfélaga verða af gríðarlegum fjármunum. Áætla má að tekjur hafnarsjóða hefðu verið um hundruð milljóna króna meiri ef greitt hefði verið sama verð og í Færeyjum. Þessi verðmunur á uppsjávarfiski er ekki aðeins bundinn við makríl. Það er líka gríðarlegur munur á verði á loðnu og kolmunna.

Við þessu þurfa íslensk stjórnvöld að bregðast strax.

Á morgun hef ég boðað yfirmann Verðlagsstofu skiptaverðs á fund atvinnuveganefndar til að kynna starfsemi stofnunarinnar. Þar verður meðal annars farið yfir þessi verðlagsmál.

Hjá stofnuninni vinna aðeins þrír sérfræðingar. Miðað við stöðu þessara mála er er augljóst að efla þarf starfsemina og tryggja stofnuninni nauðsynleg tæki til að leita upplýsinga um raunvirði afla. Það liggur í augum uppi að gríðarlegir fjármunir eru í húfi. Þess vegna ætti að setja þetta mál í algeran forgang hjá stjórnvöldum.

Hér er áhugaverð umfjöllun um málið.

Sjávarútvegsspjallið – 61. þáttur: Makríll, heildarveiði og kjarasamningar

Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

 

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?