Íslandsbanki hækkar vexti í dag. Bankinn telur rétt er að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak. Samkvæmt tilkynningu.
Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:
- Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 0,50 prósentustig.
- Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,35 prósentustig.
- Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,75 prósentustig.
- Breytilegir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.
- Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 3 ára hækka um 0,80 prósentustig.
- Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 5 ára hækka um 0,80 prósentustig.
Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.
Umræða