Klukkan 21:23 í gærkvöld var tilkynnt um líkamsárás í Hafnarfirði. Meiðsli þolanda eru ekki talin vera mjög alvarleg en gerandinn gistir nú í fangageymslu þar til unnt verður að ræða við hann. Gerandinn var undir áhrifum þegar hann var handtekinn.
Þá var tilkynnt um þjófnað á matvörum úr verslun í vesturbæ Reykjavíkur. Gerandi var farinn af vettvangi en lögreglumenn þekktu viðkomandi eftir skoðun á myndefni úr öryggismyndavélum.
Umræða