• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Styrkir veittir til hreinsunar á strandlengju Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra hefur kynnt fjögur verkefni sem fá úthlutað styrkjum til verkefna sem felast í hreinsun strandlengju Íslands.

Styrkirnir eru veittir  á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í plastmálefnum Úr viðjum plastsins. Aðgerðin felur í sér að sett er af stað átak til 3 – 5 ára til allsherjarhreinsunar strandlengjunnar af plasti og öðrum úrgangi.

Hreinleiki sjávar er Íslandi afar mikilvægur og strandhreinsanir gegna þar veigamiklu hlutverki.

Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar.

„Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að draga úr plastmengun á ströndum og á hafi. Frjáls félagasamtök og sjálfboðaliðar hafa gegnt lykilhlutverki við þessa hreinsun. Við viljum styðja þau í þessu verki,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Styrkirnir voru auglýstir þann 10. nóvember 2021 og bárust fjórar umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 20 milljónir króna.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk  til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands:

 Umsækjandi  Styrkupphæð
 Blái herinn  7,500.000 kr.
 Veraldarvinir  7,500.000 kr.
 Ocean Missions  2,500.000 kr.
 Seeds  2,500.000 kr.
Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?