• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 8. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samstaðan rofin um hagsmuni Íslands

Samstaðan rofin um hagsmuni Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. febrúar 2025
in Innlent
A A
0

Forsætisráðherra Íslands leggst í víking með öflum óvinveittum íslenskri þjóð. Á kostnað skattgreiðenda flengist hún um heiminn í faldi keisarans í Brussel. Kristrún Frostadóttir hefur meiri samstöðu með sósíalíska Internationalen en með íslenskri þjóð. Mesta eitur í beinum valkyrjanna er stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem þær hafa svarið eið að framfylgja.

Gústaf Adolf Skúlason, skrifar hjá Þjóðólfi.is

Fyrsta frumvarpið um bókun 35 á að tryggja endanlega yfirtöku á íslenska löggjafanum. Síðan verður fylgt eftir með kosningaleikriti um aðild að ESB svo Kristrún og aðrir skósveinar ESB geti veifað „samstöðu“ þjóðarinnar með hinu erlenda yfirvaldi og stimplað sjálfa sig inn sem mikilmenni hjá framtíða drottnurum Íslands.

Nái áform þessarar hreinræktuðu vinstri stjórnar fram að ganga, sem keyrir áfram svikastefnu Sjálfstæðisflokksins sem þjóðin hefur mátulega lagt sem hálfstæðisflokknum, nær lýðveldið ekki að verða aldargamalt. Fari svo sem sósíalíski Internationalen vill, að stofnaður verði sameiginlegur her fyrir ESB og lagt út í þriðju heimsstyrjöldina gegn Rússum, er óvíst hvort nokkru sinni komist á lýðveldi aftur á Íslandi.

Allt það sem forfeðurnir börðust fyrir, losun úr fjötrum nýlenduríkis til burðugrar lítillar en sjálfstæðrar þjóðar, verður til einskis. Öll baráttan fyrir stækkun landhelginnar verður að engu höfð sem kannski gæti glatt samstöðuminni söguendurritarans Guðna Th. Jóhannessonar sem ósáttur er við fávísan lýðinn.

Kristrún Frostadóttir og samkyrjur hennar þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland fá kannski að glansa í fimm mínútur við gyllta hliðið í Brussel sem er allt sem þær sækjast eftir fyrir störf í þágu Evrópusambandsins.

Minnumst orða Arnar Þórs Jónssonar, formanns Lýðræðisflokksins:

„Hlutverk þingmanna er að verja stjórnarskrá lýðveldisins, styrkja innviði og verja Alþingi sem löggjafarþing.“

Ekkert af þessu virða ráðherrar ríkisstjórnar Íslands sem hafa skilið eftir stjórnarskrá Íslands frosna í öræfahelli týndri öllum landsmönnum. Ríkisstjórn Íslands gerir allt sem í hennar valdi stendur til að slökkva það ljós sem lyftir þjóðinni duftinu frá og gefur hinu eilífa smáblómi líf. Greinina má lesa á vefnum Þjóðólfur.is

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Ók á um 160 km. hraða – Menn á stolnum bíl handteknir

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Al­var­legt slys: Ekið á gangandi vegfaranda

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Ísland tekur líklega ekki þátt í Eurovision

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?