Um helgina komu upp tvö mál hjá lögreglunni á Suðurnesjum, þar sem 13 og 14 ára stúlkur voru fluttar meðvitundarlausar á sjúkrahús. Talið var í fyrstu að um veikindi væri að ræða en við sýnatöku kom í ljós að þær höfðu innbyrt kannabisefni og morfín.
Rannsókn leiddi til þess að stúlkurnar voru á sama stað fyrr um kvöldið og var þeim báðum boðið að fá sér hlaup. Ómeðvitaðar hvað væri í hlaupinu þá fengu þær sér og enduðu þær báðar á sjúkrahúsi. Málin bárust til lögreglu og rannsókn leiddi í ljós að stúlkurnar höfðu fengið þetta hjá ungum aðila sem hafði sjálfur keypt þetta af sér eldri manni.
Sjálfsagt er um að ræða forvitni hjá unga fólkinu. Foreldrar þessara krakka spurðu okkur ítrekað hvar fá börnin þessi efni? Aðgengi að fíkniefnum er afar auðvelt og fyrir þann sem hefur verið bent á hvernig þetta er gert þá tekur það ekki nema nokkrar mínútur að verða sér úti um efni. Við fórum og ræddum við þann sem lét stúlkurnar hafa hlaupið og var hann yfirheyrður varðandi málið.
Foreldrar þessara krakka ásamt barnavernd eru nú að vinna í því í sameiningu að aðstoða börn sín varðandi þessa reynslu og unga manninum sem var sér úti um þetta var brugðið er hann sat fyrir framan rannsóknarlögreglumann og áttaði hann sig á alvarleika málsins. Við viljum brýna fyrir foreldrum að ræða þetta við börnin ykkar og fræða þau um þessar hættur sem eru þarna úti. Sá sem þetta ritar gerði sér ferð á veraldarvefinn og eftir stutta stund þar þá er gríðarlega auðvelt að búa til þetta hlaup og hægt er að steypa það í hvaða form sem er, hvort sem það eru hlaupbangsar eða hvað sem er.
Verra er þó að í þetta er hægt að setja hvað sem er, eins og í því tilfelli sem er nefnt hér að ofan þá var einnig að finna morfín í þeim sýnum sem tekin voru úr stúlkunum. Í þetta er til dæmis hægt að setja allskyns sterk lyf eins og Contalgin eða Oxycontin og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum ef 13 ára gamalt barn innbyrði slíkt hlaup. Stúlkunum heilsast ágætlega í dag og eru útskrifaðar af sjúkrahúsi og munu að öllum líkindum ná sér að fullu að sögn lögreglu.