• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

Lögreglan

Heilt yfir gekk menningarnótt friðsamlega og vel fyrir sig

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hér eru helstu atriði úr dagbók LRH frá kl.17-05. Þegar þetta er ritað eru sjö vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 140 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.

Lögreglustöð 1

Lögreglumenn höfðu afskipti af aðila sem var sjáanlega í annarlegu ástandi að angra vegfarendur með köllum og öskrum. Þegar lögregla hafði afskipti af viðkomandi brást hann illa við og var með ógnandi tilburði í garð lögreglu. Var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð sökum ástands þar sem hann var vistaður í fangaklefa þar til rynni af honum.

Þjófnaður á veitingastað í miðborginni. Mál í rannsókn.

Tilkynnt um aðila til ama við félagslegt úrræði. Þegar lögreglu bar að garði þekkti lögregla hann vegna fyrri afskipta. Við öryggisleit á aðilanum fundust tveir hnífar í fórum hans. Hann fluttur á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af viðkomandi fyrir vopnalagabrot og hann laus að skýrslutöku lokinni.

Tilkynnt um rúðubrot þar sem aðili hafði fleygt járnröri inn um rúðu. Mál í rannsókn.
Höfð afskipti af ungmenni í annarlegu ástandi í strætóskýli. Brást viðkomandi illa við afskiptum við lögreglu og fór að veitast að lögreglu með höggum og hrákum. Var viðkomandi færður á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt með aðkomu forráðamanna.

Lögregla hefur afskipti af aðila sem var að veitast að vegfarendum með höggum fyrir utan skemmtistað. Aðilinn handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Var viðkomandi í annarlegu ástandi og vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.

Höfð afskipti af manni sem var sofandi í framsæti í bifreið. Þegar lögregla ræddi við viðkomandi vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum vímuefna og að hugsanlega væru meint vímuefna í bifreiðinni. Heimilaði viðkomandi leit og fannst mikið magn af meintum vímuefnum og fjármunum í fórum hans. Viðkomandi vistaður í fangaklefa fyrir rannsókn málsins.
Almennt eftirlit.

Lögreglustöð 2

Tilkynnt um umferðarslys þar sem bíll endaði utan vegar. Var ökumaður fluttur á slysadeild vegna minniháttar eymsla. Dráttabíll kallaður til að flytja bifreiðina.

Tilkynnt um hugsanlegan ölvaðan ökumann. Sú tilkynning reyndist rökum reist þegar lögregla stöðvaði viðkomandi við akstur. Viðkomandi færður í viðeigandi ferli og laus að blóðsýnatöku lokinni.
Almennt eftirlit

Lögreglustöð 3

Tilkynnt um bifreið sem var rásandi. Lögregla stöðvaði bifreiðina við akstur og reyndist ökumaður ölvaður við akstur og akandi án réttinda. Þar að auki var viðkomandi ungmenni og var málið leyst með aðkomu forráðamanna. Að blóðsýnatöku lokinni var viðkomandi laus úr haldi lögreglu.

Tilkynnt um líkamsárás en óljós hverjir væru gerendur í máli. Viðkomandi fluttur á slysadeild með minniháttar áverka. Mál í rannsókn.

Tilkynnt um eld í bifreið við matvöruverslun. Þegar lögregla kom á vettvang var enga bifreið að sjá sem passaði við lýsingu.

Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í garði við heimahús. Lögregla á staðinn.
Almennt eftirlit

Lögreglustöð 4

Tilkynnt um tónlistarhávaða. Húsráðanda gert að lækka.
Almennt eftirlit

Menningarnótt

Heilt yfir gekk menningarnótt friðsamlega og vel fyrir sig. Að flugeldasýningu lokinni voru leiðir greiðar frá miðbænum er fólk hélt heim á leið. Mikið mannlíf í miðbæ Reykjavíkur í kringum dagskrá menningarnætur og sýnileg löggæsla víðsvegar um miðbæinn í takt við það.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Næsta lægð er væntanleg

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?