• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

María Rut leiðir lista Viðreisnar

María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, Skipar efsta sæti á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

María Rut leiðir lista Viðreisnar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. október 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á fundi landshlutaráðs flokksins í kvöld, 23. október, með öllum greiddum atkvæðum.

María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, leiðir listann. Í öðru sæti er Edit Ómarsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá Advania. Þriðja sætið skipar Ragnar Már Ragnarsson, byggingafulltrúi Snæfellsbæjar og í fjórða sæti er Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.

María Rut segist stolt af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu. Hún hlakkar til komandi kosningabaráttu.

„Við teflum fram glæsilegum lista. Hann er stútfullur af reynslumiklu og björtu fólki sem þekkir hvern krók og kima kjördæmisins. Hjarta mitt slær fyrir Norðvesturkjördæmi og ég hlakka til að hitta fólk og heyra hvað það er sem því liggur á hjarta. Ég hef öðlast mikla reynslu á síðustu árum bæði sem aðstoðarmaður formanns Viðreisnar og sem varaþingmaður.

Stóra verkefnið fram undan er að létta fólki róðurinn. Bæði hvað varðar efnahagsástandið en einnig þegar kemur að andlegri líðan. Í Norðvesturkjördæmi er einnig mikið ákall um bættar samgöngur, atvinnuuppbyggingu og þjónustu. Þar er verk að vinna og við erum svo sannarlega tilbúin að hefjast handa.“

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi:

  1. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar. Flateyri
  2. Edit Ómarsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá Advania. Akranesi
  3. Ragnar Már Ragnarsson, byggingafulltrúi Snæfellsbæjar. Stykkishólmi
  4. Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar. Ísafirði
  5. Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna hjá Norðuráli. Akranesi
  6. Alexander Aron Guðjónsson, Lýsingahönnuður og rafvirki. Akranesi
  7. Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri. Patreksfirði
  8. Magnús Einar Magnússon, stálsmíðameistari. Flateyri
  9. Maggý Hrönn Hermannsdóttir, kennari á eftirlaunum. Ólafsvík
  10. Sigþór Snorrason, kennari. Ísafirði
  11. Alma Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður á heimili fatlaðs fólks. Blönduósi
  12. Gísli Karel Halldórsson, verkfræðingur. Borgarnesi
  13. Sunna Gylfadóttir, kennari. Varmahlíð
  14. Sigurbjörn Sveinsson, læknir. Reykjavík
Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?