• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 2. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Jólahlaðborð Hjá Jóni við Austurvöll: Einstök upplifun í hjarta borgarinnar

Jólahlaðborð Hjá Jóni við Austurvöll: Einstök upplifun í hjarta borgarinnar

Veitingahúsinu Hjá Jón, við Austurvöll, tekst á einstakan hátt að fanga anda jólanna, í bragði, stemningu og upplifun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. nóvember 2025
in Afþreying, Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Þegar jólin nálgast fer Reykjavík að taka á sig einstakan ljóma þar sem götur prýðast ljósum, hátíðarstemningin magnast og borgin fyllist af ilmnum af krydduðum kræsingum. Í hjarta borgarinnar, við hinn sögufræga Austurvöll, er að finna sannkallaða jólaperlu: Jólahlaðborð veitingahússins Hjá Jóni.

Veitingastaðurinn, Hjá Jóni, við Austurvöll er staðsettur á einum fegursta, sögulegasta og líflegasta stað borgarinnar, í næsta nágrenni við Alþingishúsið, Dómkirkjuna og trén á Austurvelli þar sem jólastemningin nýtur sín til fulls. Gestir fá ekki aðeins óviðjafnanlega matarupplifun, heldur einnig einstakt umhverfi, þar sem saga, menning og hátíðleg stemning fléttast saman.

Maður finnur sig mjög velkominn á stílhreina og þægilega veitingastaðnum ,,Hjá Jóni“ á hinu glæsilega Iceland Parliament hóteli við Austurvöll, Thorvaldsensstræti 2. Staðurinn býður upp á glæsilegan og bragðgóðan jólamat á matseðli sem og vel út látið jólahlaðborð þessa dagana.

Jólahlaðborðið hjá Jóni er einstaklega glæsilegt og metnaðarfullt. Þar má finna allar klassísku jólaréttina sem Íslendingar þekkja og elska, safaríkt hangikjöt og hamborgarhrygg, ljúffengt ribb, stökkar kartöflur, heimagerðar sósur, fjölbreytt úrval af síld, fiski, salötum og ekki síst dýrindis eftirrétti sem fá flesta til að brosa.

Allt er lagt upp af alúð og fagmennsku og ljóst að hráefnin eru vönduð og matargerðin unnin af miklu næmi fyrir bragði og hefð. Um er að ræða stílhreinan veitingastað á hinu glæsilega Iceland Parliament hóteli við Austurvöll. Hjá Jóni fá bragðlaukarnir ævintýralega upplifun þar sem mætast hágæða hráefni og alþjóðlegir straumar í matargerð ásamt sérvöldum vínum og úrvali kokteila sem hristir eru saman á hinum skemmtilega Telebar.

Fullkomin blanda af nútímalegum stíl og klassískum jólablæ

Andrúmsloftið á veitingastaðnum, Hjá Jóni er hlýlegt og notalegt og fullkomin blanda af nútímalegum stíl og klassískum jólablæ. Starfsfólkið tekur einstaklega vel á móti gestum, þjónustan er persónuleg og fagleg, og gestir finna strax að hér er hugsað um smáatriðin. Þetta er staður þar sem fólk getur slakað á, notið samveru og gleymt dagsins amstri um stund og fundið jólaandann.

Hægt er að skoða myndir og matseðla hjá veitingahúsinu, á heimasíðunni, facebook og Instagram en svo er einfaldlega hægt að upplifa heimsókn á veitingahúsið og panta borð.

Eftir góðan málsverð býður staðsetningin líka upp á hinn fullkomna göngutúr. Það er fátt sem jafnast á við að rölta frá Austurvelli og upp á Laugaveg t.d. og upplifa jólabúning borgarinnar. Eða ganga niður að Höfninni og Hörpunni eða bara taka stuttan hring um miðbæinn þar sem ljósin speglast í gluggum verslana og kaffihúsa. Fyrir þá sem vilja rólegra umhverfi er upplagt að ganga að Tjörninni og njóta kyrrðarinnar undir stjörnubjörtum himni.

Sannkölluð upplifun

Jólahlaðborð Jóns við Austurvöll er því ekki aðeins frábær málsverður, heldur sannkölluð upplifun. Þetta er hinn fullkomni staður fyrir fjölskyldur, vinahópa og vinnustaði sem vilja halda upp á jólin í fallegu umhverfi með framúrskarandi mat og frábærri þjónustu.

Veitingahúsinu Hjá Jón, við Austurvöll, tekst á einstakan hátt að fanga anda jólanna, í bragði, stemningu og upplifun.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Endurmenntun bílstjóra – sektir og kyrrsetning

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Úlfar: Kerfisbreytingar drifnar áfram af vók hugmyndafræði

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Leiguverð á kvóta 420.000 krónur tonnið í júlí 2022 – Kvótagreifi sem leigir frá sér kvóta borgar ekki krónu til samfélagsins

    395 deilingar
    Share 359 Tweet 15
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?