• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Staða biðlista á leikskóla

Ungbarnaleikskólinn Bríetartúni - Reykjavíkurborg

Kallað eftir samráði við foreldra um leikskólamál

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Formaður VR gagnrýnir harðlega samráðsleysi borgaryfirvalda þegar kemur að tillögum um breytingar á á umhverfi leikskólanna í borginni. VR fundaði með borgaryfirvöldum í morgun til að fylgja eftir athugasemdum sem VR hefur gert við þessar breytingar – vonbrigði sagði formaður VR að fundi loknum.

VR hefur ítrekað bent á að leikskólamál eru kjaramál og því óskiljanlegt að hagsmunir vinnandi foreldra séu ekki teknir með í reikninginn þegar gerðar eru umfangsmiklar breytingar á leikskólum. VR hefur barist gegn óhóflegum hækkunum sveitarfélaga á gjaldskrám leikskóla síðustu misseri og krafist þess að byrðunum sé ekki varpað á foreldra ungra barna.

Fulltrúar frá VR funduðu með fulltrúum meirihlutans í borgarstjórn ásamt embættismönnum málaflokksins til að ræða málin og kynna afstöðu félagsins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði fundinn hafa valdið sér vonbrigðum. „Það kom skýrt fram á fundinum að meginmarkmið borgarinnar er að stytta vistunartíma barna til að bregðast við styttingu vinnuviku starfsfólks leikskóla.

Innan VR eru fimm þúsund vinnandi foreldrar leikskólabarna sem langflestir vinna lengri vinnudag en starfsfólk hins opinbera. Það gengur beinlínis í berhögg við skuldbindingar sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga að leggja auknar álögur á þessa foreldra og við munum berjast gegn því af fullum þunga.“

VR leggur áherslu á að hlustað sé á raddir foreldra og þeirra sem hagsmuna eigi að gæta. Stytting vinnuvikunnar á leikskólum geti ekki verið framkvæmd á kostnað foreldra.  VR leggur til að tillögurnar verði dregnar til baka og unnar betur í samráði við foreldra og hagsmunasamtök þeirra.

Umsögn VR um mál nr. 11/2025 – umbætur í náms- og starfsumhverfi leikskóla

Sjá nánari umfjallanir VR um leikskólamál

  • Formaður VR kynnti sér leikskólamál í Mosfellsbæ
  • Hvetjandi refsing Reykjavíkurborgar
  • VR hafnar breytingartillögum um leikskóla í Reykjavík
  • Stjórn VR gagnrýnir tillögur um breytingar á leikskólum höfuðborgarinnar
  • Ræðum um leikskólamálin
  • Kjaraskerðing fjölskyldufólks og afturför í jafnréttisbaráttunni – Ályktun stjórnar VR vegna breytinga í leikskólamálum í Kópavogi
  • VR og AFL funda með Fjarðabyggð vegna hækkunar leikskólagjalda
  • Tekjuskerðing foreldra ungra barna getur hlaupið á milljónum
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    135 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Sturluð staðreynd

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?