• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Völdin sem útgerðarmönnunum er leyft að hafa yfir meðferð á fiskveiðiauðlindinni og eftirliti lýsa engu öðru en spillingu''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. janúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Hver er það sem kemur í veg fyrir að ráðherra leggi frumvörpin fyrir þingið? Mér finnast völdin sem útgerðarmönnunum er leyft að hafa yfir meðferð á fiskveiðiauðlindinni og eftirliti lýsa engu öðru en spillingu.“ 

Segir Oddný G. Harðardóttir eftir lestur á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fiskistofu.  
,,Er að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fiskistofu. Það er sláandi lesning og í raun áfellisdómur yfir Fiskistofu og Sjávarútvegsráðuneytinu um leið. Skýrslan sýnir vítaverða vanrækslu af hálfu stjórnvalda og ofurvald útgerðarinnar yfir auðlind þjóðarinnar og eftirliti með sjálfri sér.
Í skýrslunni segir m.a. þetta: „[Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti] hefur gert margar atlögur að því að breyta regluverkinu í þeim tilgangi að eftirlit verði viðráðanlegt en ekki haft árangur sem erfiði. Fiskistofa hefur í flestum, ef ekki öllum tilvikum verið höfð með í ráðum og tillit tekið til eftirlitshlutverks stofnunarinnar í slíkri vinnu. En sú vinna sem hér er vísað til hefur lítinn árangur borið.“
Hver er það sem kemur í veg fyrir að ráðherra leggi frumvörpin fyrir þingið? Mér finnast völdin sem útgerðarmönnunum er leyft að hafa yfir meðferð á fiskveiðiauðlindinni og eftirliti lýsa engu öðru en spillingu. Þessu verður að breyta.

Annað dæmi úr skýrslunni: „Samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar eru auk þess mörg dæmi um að einungis einn hafnarstarfsmaður sinni vigtun hverju sinni og að hann sé þá oft bundinn við starfsstöð sína án þess að hafa tök á að gaumgæfa samsetningu og íshlutfall þess afla sem veginn er. Þá eru vigtarmenn oft tengdir viðskiptavinum hafnanna fjölskyldu- eða vinaböndum og erfitt getur reynst að tryggja óhæði þeirra í sýnd og reynd.“ Í sumum sveitarfélögum ráða útgerðarmenn því sem þeir vilja ráða, s.s. hvern sveitarstjórn ræður til starfa til hafnarinnar.

Við eigum eftir að ræða skýrsluna í þinginu og fylgja því eftir að ráðherra vinni úr henni með frumvörpum, regluverki og fjármunum þannig að Fiskistofa geti sinnt eftirlitshlutverki sínu með skilvirkum hætti. Eða eins og segir í upphafi niðurstöðukaflans: „Sjávarútvegur er einn veigamesti og arðbærasti atvinnuvegur landsins og standa ríkir almannahagsmunir til þess að eftirlit með umgengni og nýtingu sjávarauðlindarinnar sé traust og í samræmi við lög.“  rikisendurskodun.is
Tengt efni: 
https://www.fti.is/2019/01/12/ad-henda-fiski-eru-ekki-sjalfbaerar-veidar-heldur-ranyrkja-olafur-skipstjori-varadi-itrekad-vid-brottkasti/
https://www.fti.is/2018/11/29/laekka-verdur-alogur-a-utgerdina-veidigjold-bokhaldsbrellur-og-aflandsfelog-utgerda-nafngreindar/
https://www.fti.is/2018/12/11/laekkun-veidigjalda-eg-tel-ad-thetta-se-mikid-framfaraskref-og-ad-god-vinna-hafi-farid-fram/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?