• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 20. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ákall um samfélagsbanka og andstaða við sölu Íslandsbanka

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ný könnun

Innan við fjórðungur landsmanna er hlynntur sölu Íslandsbanka og er stuðningur langsamlega mestur meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Tæplega 56% eru andvíg sölunni. Meira en sex af hverjum tíu eru hins vegar hlynnt því að ríkið stofni samfélagsbanka og aðeins lítill hluti er því andvígur. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem Gallup vann að beiðni Alþýðusambands Íslands. Samkvæmt niðurstöðunum eru karlar líklegri en konur til að hafa afdráttarlausa skoðun á mögulegri sölu bankans. 27% karla eru hlynntir sölunni en 59% andvígir. Tvær af hverjum tíu konum eru hlynntar sölu en tæplega 60% andvígar.

Íslandsbanki

Stuðningur við sölu Íslandsbanka er minnstur í millitekjuhópum en mestur í hæsta launaþrepinu. Meirihluti kjósenda Sjálfstæðisflokks er hlynntur sölunni eða 56% en þar á eftir er stuðningur mestur meðal kjósenda Miðflokksins eða 32%. Minnstur er stuðningur meðal mögulegra kjósenda Sósíalistaflokksins þar sem nærri allir andvígir sölu Íslandsbanka. Að öðru leyti er andstaðan mest í röðum kjósenda Samfylkingarinnar (73%), þar næst Pírata (68%), VG (65%) og Framsóknarflokksins (53%). Þá vekur athygli að kjósendur Viðreisnar eru ólíklegri til að vera hlynntir sölu Íslandsbanka (13%) en kjósendur VG (23%).

Í könnuninni var einnig spurt um afstöðu til þess að ríkið stofni samfélagsbanka og voru meira en sex af hverjum tíu hlynnt því en einungis 15% andsnúin. Aftur skera kjósendur Sjálfstæðisflokksins sig úr en þeir eru líklegastir til að vera andsnúnir samfélagsbanka. Kjósendur Viðreisnar og Miðflokks eru líklegri en aðrir til að hafa efasemdir um samfélagsbanka en kjósendur annarra flokka líklegri til að styðja slík áform.

Drífa Snædal, forseti ASÍ:
„Ný könnun ASÍ sýnir svart á hvítu að sú vegferð stjórnvalda að selja Íslandsbanka nýtur ekki stuðnings meðal almennings. Salan er keyrð áfram með hraði vegna þess að fjármagnseigendur með fulltingi fulltrúa sinna á þingi vilja ljúka henni fyrir kosningar en í þeim kosningum gæti þau öfl misst umboðið til að ráðstafa eignum almennings. Könnunin sýnir einnig fram á skýran vilja almennings um að ríkið stofni samfélagsbanka. Stjórnmálin þurfa að hlusta á þetta ákall.“

Umræða
Share55Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    126 deilingar
    Share 50 Tweet 32
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?