Aukin hætta á krapaflóðum og skriðuföllum samhliða vatnavöxtum
Á morgun, þriðjudag er spáð mikilli rigningu um sunnan og austanvert landið. Búast má við leysingu með vatnavöxtum á Suðurlandsundirlendinu. Við Mýrdalsjökul verður töluverð leysing og úrkoma sem og á SA-landi og Austfjörðum. Veðrinu fylgir aukin hætta á skriðum og jafnvel krapaflóðum þar sem enn er snjór í farvegum.
Mikil leysing var um helgina í hlýindum og rigningu á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum á föstudag og laugardag.
Mesti vindur á landinu síðustu klukkustund:
Hálendi | |
---|---|
Kerlingarfjöll – Ásgarðsfjall | 47,7 m/s |
Jökulheimar | 22,1 m/s |
Vatnsfell | 21,2 m/s |
Láglendi | |
---|---|
Stórhöfði | 30,1 m/s |
Surtsey | 23,6 m/s |
Fagurhólsmýri | 22,8 m/s |
Suðvestan rok jafnvel ofsaveður :
https://www.fti.is/2019/02/25/snyst-i-sudvestan-23-30-m-s-appelsinugul-vidvorun/
Umræða