• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Utankjörfundaratkvæðagreiðslur á Kanaríeyjum og Torrevieja

Sjö flokkar hafa fengið 605 milljónir í ár

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Sjö stjórnmálasamtök hafa fengið greitt samtals 605 m.kr. úr ríkissjóði fyrir árið 2026. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn eða hlotið að lágmarki 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum eiga rétt á framlagi úr ríkissjóði.

Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka er að finna reglur um framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi. Þar kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eigi rétt á 12 milljóna króna grunnrekstrarframlagi úr ríkissjóði á ári hverju. Þá fá stjórnmálasamtök sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjörinn eða hlotið hafa að lágmarki 2,5% atkvæða í næstliðnum alþingiskosningum framlag úr ríkissjóði skv. ákvörðun í fjárlögum hverju sinni.

Skilyrði fyrir úthlutun á fé úr ríkissjóði sem og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð á stjórnmálasamtakaskrá og að þau hafi uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda og að ársreikningur þeirra hafi verið birtur.

Uppfært verklag tryggi að skilyrðum sé fylgt

Fjármála- og efnahagráðuneytið fór yfir ferla við greiðslu til stjórnmálasamtaka og gerði viðeigandi úrbætur í kjölfar þess að ábendingar bárust í ársbyrjun 2025 um að framlög hefðu verið greidd árið 2022 án þess að skilyrði um skráningu í stjórnmálasamtakaskrá hefði verið könnuð. Óskað var eftir mati Ríkisendurskoðunar á þeim breytingum sem gerðar voru og í febrúar sl. birti Ríkisendurskoðun niðurstöðu um að uppfært verklag ráðuneytisins styrki framkvæmd laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og tryggi að skilyrðum fyrir greiðslum úr ríkissjóði sé fylgt.

Í mati Ríkisendurskoðunar kemur fram að verklagið hafi verið skýrt nánar og bætt þannig að betur sé tryggt að laga skilyrðum sé fullnægt áður en greiðslur fari fram. Þá er bent á að kanna megi hvort einfaldara og skilvirkara sé að færa umsjón og framkvæmd greiðslna til eins aðila, til dæmis Fjársýslunnar. Einnig er hvatt til þess að umsóknarferill verði formfestur frekar, meðal annars með rafrænu umsóknarkerfi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?