• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Torfan veitingahús er fimm stjörnu og í hæsta gæðaflokki

Torfan veitingahús er fimm stjörnu og í hæsta gæðaflokki

Hefur þú bragðað elgsteik? - Sögufrægt hús að Amtmannsstíg 1 í Reykjavík

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2026
in Afþreying, Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Torfan veitingahús er bæði virðulegt hús að utan sem innan og andinn í því er sérstaklega góður og notalegur. Vel fer um gesti og nóg pláss í veitingasalnum til að láta fara vel um sig. Falleg húsgögn og hönnun að innan gera stemminguna algjörlega frábæra og ógleymanlega

Þjónustan og maturinn er frábær og gott úrval af forréttum, aðalréttum og eftirréttum á matseðli sem og gott úrval á vínseðlinum.
Það er einstaklega kósý að njóta þess sem boðið er upp á í svona notalegu umhverfi sem veitingahúsið býður upp á, sem fær fimm stjörnur af fimm mögulegum þegar allt er metið.

Torfan veitingahús heimsótt og upplifunin var frábær

Starfsmenn Fréttatímans heimsóttu Veitingahúsið Torfuna á dögunum og upplifunin var frábær vegna þess að staðurinn stóðst allar væntingar og rúmlega það. Hreint út sagt, frábær veitingastaður!

Þjónustan var mjög persónuleg og þægileg og rætt við okkur um matseðilinn og hvaðan hráefnið væri. Það var athyglivert að heyra að hreindýrakjötið og elgkjötið er sérstaklega handerað fyrir veitingahúsið af samstarfsaðila í Lapplandi nánar tiltekið í norður Svíþjóð.

Hreindýrafillet sem upprunið er frá Lapplandi er borið fram með íslensku byggi og sveppum, steinselju, spínati og villibráðarsósu. Elg steikin var alveg meiriháttar góð og um er að ræða rifjasteik sem borin er fram með árstíðabundnu grænmeti, gullinni fondant-kartöflu og rabarbara- og rauðrófusósu.

Kokkurinn kom svo til okkar og lýsti meðferð kjötsins og matreiðslu þess sem og ræddum við um aðra rétti á matseðlinum sem eru bæði ljúffengir og glæsilegir.

Elg- og hreindýrakjötið var hreint út sagt frábært sem og aðrir aðalréttir sem við prufuðum svo og eftirréttirnir. Var það samhljóma skoðun okkar að það verða allir ánægðir sem panta borð á Torfan veitingahús vegna þess að það bara smellur allt saman sem veitingahús í hæsta gæðaflokki getur boðið upp á.

Kokkarnir hafa mjög mikla reynslu af því að starfa á einöngruðum stöðum. Þar hafa þeir starfað með heimafólki við að búa til frábæran mat sem byggir á staðbundinni matargerð.

Kokkarnir hafa til að mynda unnið og numið á Grænlandi, Svalbarða sem og í Lapplandi ásamt afskekktustu svæðum Íslands og aflað sér þekkingar frá staðbundnum leiðbeinendum.

Með þá reynslu færa þeir gestum bestu mögulegu rétti hverju sinni og upplifun.

Sögufrægt hús

,,Þegar þetta sögufræga hús að Amtmannsstíg 1 í Reykjavík var laust til afnota fyrir starfsemi ákváðum við að láta alla okkar villtustu drauma rætast og opna veitingastað.
Hráefnið er það ferskasta hverju sinni og því breytist matseðillinn að einhverju leyti eftir árstíðum.
Í tímaritinu Scan, þar sem fjallað var um nýjustu fréttir af skandinavískum ferðalögum, hönnun, viðskiptum og menningu, var skrifað um veitingahúsið:

„Með áherslu á ekta norræna matargerð leggur teymið af hæfum matreiðslumönnum metnað sinn í að útvega fyrsta flokks hráefni frá traustum framleiðendum á staðnum, með árstíðabundnum matseðli sem breytist eftir því hvað er ferskt og í boði.

Hugsið ykkur hefðbundna íslenska matargerð en uppfærða og með lúxusívafi.“

Lesið meira hér: Grein í tímaritinu Scan

Fréttatíminn mælir sérstaklega með að fólk prufi að panta borð á Torfan veitingahús og upplifi þar góðar stundir, því veitingahúsið býður upp á allt til þess að upplifunin verði frábær!

Við látum fylgja með hér að neðan sýnishorn af myndum sem teknar hafa verið á Torfan veitingahús:

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Lögreglumál: Þrjár stúlkur frömdu líkamsárás

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Gæsluvarðhald vegna andláts karlmanns í Kópavogi

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Sturluð staðreynd

    52 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?