Kæru landsmenn: Tvö andlát á Íslandi má nú rekja til veirunnar með beinum eða óbeinum hætti. Ég hef sent ástvinum þeirra, sem létust, innilegar samúðarkveðjur.
Við glímum við vágest sem ógnar lífi og heilsu fólks. Mestu varðar að verja þá sem eru veikastir fyrir. Við verðum að fylgja öllum tilmælum og leiðbeiningum í hvívetna. Og við treystum á okkar færa starfsfólk í heilbrigðiskerfinu. Allt það lið á miklar þakkir skildar þessa erfiðu daga. Ég minni á kveðju mína til þessarar framvarðasveitar okkar sem lesa má hér:
https://www.forseti.is/…/2020_03_12_kvedja_til_heilbrigdiss….
Því miður valda nauðsynlegt viðbrögð þungum búsifjum víða í samfélaginu. Við verðum að þola um stund að geta ekki ferðast að vild, verðum að lifa við aðrar hömlur á dagleg samskipti. Allir í ferðaþjónustunni hafa orðið fyrir miklu áfalli og sömuleiðis þeir, sem vinna við verslun og hvers kyns önnur þjónustustörf. Fólki í þessum mikilvægu greinum atvinnulífsins hef ég sent hlýjar kveðjur sem sjá má og lesa hér:
https://www.forseti.is/…/2020-03-24-kve%C3%B0ja-til-starfs…/.
Ekki er síður vert að þakka starfsliði skólanna, allt frá háskólastigi að leikskólum landsins. Í menntakerfinu hefur fólk sinnt sínum störfum af alúð og trúmennsku við erfiðar aðstæður, fundið nýjar og frumlegar lausnir, staðið sína vakt með miklum sóma. Því var mér bæði ljúft og skylt að færa kennsluliði landsins góðar kveðjur; þær má sjá og lesa hér:

Við erum samfélag og við erum almannavarnir. Enn hvet ég fólk til að gæta ítrustu varúðar og fara að þeim ráðum sem veitt eru hverju sinni, öllum til heilla. Og munum að þakka þeim sem leggja svo mikið af mörkum fyrir okkur hin. Ég óska ykkur öllum velfarnaðar.
https://www.facebook.com/embaettiforseta/posts/1555707087913139

Umræða