Nokkur skjálftavirkni síðustu vikur
Upplýsingar vegna jarðhræringa við Þorbjörn: Kl. 09:44 í dag varð jarðskjálfti af stærð 3,4 rétt norðan við Grindavík. Skjálftans varð vart í Grindavík. Nokkur skjálftavirkni hefur verið þar síðustu vikur í tengslum við landris á svæðinu.
79 skjálftar hafa mælst á svæðinu s.l. 48 tíma og þar af sjö stærri en 2.0
- Stærð minni en 1 alls: 40
- Stærð 1 til 2 alls: 32
- Stærð 2 til 3 alls: 6
- Stærri en 3 alls: 1
- Samtals: 79 jarðskjálftar nærri Grindavík
Skjálftar sýndir:
Dags | Tími | Dýpi | Stærð | Gæði | Staður | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Miðvikudagur 25.03.2020 | 09:44:25 | 5,4 km | 3,4 | 99,0 | 3,2 km NNA af Grindavík | ||
Miðvikudagur 25.03.2020 | 03:09:41 | 5,3 km | 2,0 | 99,0 | 2,6 km NNA af Grindavík | ||
Þriðjudagur 24.03.2020 | 16:55:10 | 4,7 km | 2,5 | 99,0 | 2,5 km NNA af Grindavík | ||
Þriðjudagur 24.03.2020 | 02:21:00 | 3,8 km | 2,3 | 99,0 | 3,7 km NNA af Grindavík | ||
Þriðjudagur 24.03.2020 | 02:10:07 | 3,9 km | 2,1 | 99,0 | 3,8 km NNA af Grindavík | ||
Þriðjudagur 24.03.2020 | 02:09:40 | 4,0 km | 2,4 | 99,0 | 3,8 km NNA af Grindavík | ||
Þriðjudagur 24.03.2020 | 02:09:13 | 4,6 km | 2,4 | 99,0 | 3,8 km NNA af Grindavík |
Vikuyfirlit 16. mars – 22. mars
Tæplega 1500 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í vikunni. En er mikil virkni á Reykjanesskaganum eftir að jarðskjálftahirna hófst þar þann 12. mars, en virkni hefur verið viðvarandi þar á árinu. Um 1000 jarðskjálftar mældust á því svæði. Stærsti skjálftinn í vikunni var af stærð M4,2 þann 18. mars kl. 10:32 um 5 km NV af Gunnuhver. Skjálftinn fanst víða á suðuvesturhorni landsins. Þann 19. mars kl. 16:53 varð skjálfti af stærð M3,5 um 3,5 km NV af Grindavík. Skjálfti af stærð M3,0 varð við Kleifarvatn þann 20. mars kl. 21:21, en lítil hrina var í gangi þar þann sama dag. Virkni hélt áfram við Herðubreið og Nesjavelli en með minna móti. Minni virkni var í Vatnajökli í þessari viku en þeirri síðustu. Einn skjálfti mældist í grennd við Heklu og einn í Mýrdalsjökli.
Umræða