• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Sýknudómur vegna aðgerða á bóndabæ

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Nýlega féll héraðsdómur þar sem íslenska ríkið var sýknað vegna kröfu um skaða- og miskabætur að fjárhæð tæplegra 17 milljóna króna auk dráttarvaxta vegna þvingunaraðgerða á bóndabæ árið 2012. Matvælastofnun hafði viðhaft sérstakt eftirlit vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og umhirðu með sauðfé á bænum. Stofnunin hafði gert kröfur um úrbætur vegna fóðrunar, brynningar og húsakosts. Fór Matvælastofnun fram á það við lögreglustjóra að allt fé umfram 749 kindur yrði tekið úr vörslum umráðamanns.
Áður en til vörslusviptingar kom seldu umráðamenn 329 kindur og fækkuðu þar með fé á bænum niður í þann fjölda sem talið var að rými væri fyrir. Umráðamenn byggðu aðallega á að vörslusvipting hafi verið ólögmæt og tilefnislaus aðgerð sem hafi valdið þeim tjóni. Vörslusviptingin hafði verið framkvæmd af lögreglustjóra og byggðu umráðamenn mál sitt aðallega á því að vörslusviptingin hafi verið rannsóknaraðgerð í skilningi laga um meðferð sakamála. Til vara var byggt á að stjórnvaldsákvörðunin hafi verið ólögmæt og málsmeðferðin í andstöðu við stjórnsýslulög.
Ekki var fallist á að aðgerðir lögreglu hefðu verið liður í rannsókn sakamáls eða að aðgerðirnar hefðu verið ólögmætar og tilefnislausar. Þá segir í dómnum að í ljósi þeirra fresta sem veittir voru til úrbóta og lagfæringa yrði ekki fallist á að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Umráðamönnum hafi gefist tóm til að selja umframféð með frjálsum samningum og slíkt hafi verið gert. Í ljósi atvika málsins yrði ríkið ekki gert ábyrgt fyrir því hvort salan teldist umráðamönnum hagstæð eður ei. Þá hafnaði dómstóllinn miskabótakröfu þar sem fyrir lágu upplýsingar um bágan húsakost og aðbúnað sauðfjár á jörðinni sem umráðamenn báru sjálfir ábyrgð á. Málskostnaður aðila var felldur niður.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Verð á eldsneyti lækkar

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?