Hugleiðingar veðurfræðings
Yfir landinu er dálítill hæðarhryggur, en minnkandi smálægð á Grænlandshafi, sem valda suðvestanátt með skúrum víða um land í dag, éljum til fjalla, en þurrviðri á Norður- og Austurlandi. Lægir heldur er líður á daginn og fremur milt í veðri.
Langt suður í hafi er þó vaxandi lægð, sem nálgast landið og eftir miðnætti snýst í suðaustankalda með rigningu, en sums staðar slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Á morgun gengur lægðin síðan þvert yfir landið, en snýst þá í stífa austan- og norðaustanátt með slyddu eða rigningu fyrir norðan og síðar snjókomu, en mun hægari sunnanátt með vætu syðra. Annað kvöld er lægðin komin austur af landinu, en hvessir þá með hríðarveðri á Vestfjörðum og við norðurströndina, en snýst í vestanstrekking allra syðst. Veður fer smám saman kólnandi. Spá gerð: 25.03.2025 06:14. Gildir til: 26.03.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan 5-13 m/s og víða skúrir í dag, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Sunnan 3-10 í kvöld og súld syðst, en suðaustan 8-13 og rigning sunnan og vestantil í nótt. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast austast.
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s með rigning eða slyddu norðantil á morgun, en síðar snjókomu, hvassast norðvestantil, en suðlæg átt, 5-13 og rigning öðru hvoru syðra. Snýst í vestan 13-18 syðst seint annað kvöld og hvessir á Vestfjörðum. Hægt kólnandi veður.
Spá gerð: 25.03.2025 04:48. Gildir til: 26.03.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu norðantil og hita 0 til 5 stig, en suðlæg átt, 8-15 og rigning með köflum S- og V-lands með hita 2 til 7 stig. Snýst í suðvestan 13-18 syðst á landinu um kvöldið og hvessir heldur á Vestfjörðum.
Á fimmtudag:
Norðaustan 10-18 m/s, hvassast á Vestfjörðum, en mun hægari sunnan heiða. Víða snjókoma með köflum og vægt frost, en skúrir eða él sunnantil með hita 0 til 6 stig.
Á föstudag:
Norðlæg átt, 5-13 m/s, en austlægari syðst. Allvíða él og frost 0 til 8 stig, minnst syðst.
Á laugardag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og él við suðurströndina, en annars úrkomulítið. Áfram svalt í veðri.
Á sunnudag:
Útlit fyrir að gangi í hvassa suðaustátt með slyddu, en síðan rigningu sunnan- og vestantil og hlýnar í veðri.
Á mánudag:
Líklega suðvestlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið eystra og milt veður.
Spá gerð: 24.03.2025 19:55. Gildir til: 31.03.2025 12:00.