Mínar síður á Ísland.is auka þægindi og aðgengi að upplýsingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Framboð á þjónustu og gögnum þar hefur aukist mikið á síðustu misserum en nú veita yfir 40 stofnanir og opinberir aðilar þjónustu og birta gögn á Mínum síðum Ísland.is.
Hér eru sjö upplýsingagáttir sem þú getur kynnt þér á Mínum síðum:
- Tilvísanir og skráningu á biðlista í heilbrigðiskerfinu – finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.
- Bólusetningarstöðu þína og barna þinna – finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.
- Upplýsingar um undirskriftalista sem þú hefur skrifað undir á Ísland.is – undir hnappinum Mínar upplýsingar.
- Tilkynningar frá héraðsdómstólum og lögreglu, eins og ákærur og dómar – í stafrænu pósthólfi eða undir hnappinum Lög og regla.
- Lyfjareiknivél sem sýnir áætlaðan kostnað þinn vegna lyfjakaupa, miðað við þrepastöðu – undir hnappinum Heilsa.
- Stafræn umboð sem þú hefur veitt eða fengið – undir hnappinum Aðgangsstýring.
- Stöðu umsókna sem þú hefur hafið, sent inn eða lokið – undir Umsóknir.
Meira á leiðinni
Brátt finnur þú einnig:
- Húsaleigusamninga sem þú ert aðili að – undir hnappinum Mínar upplýsingar.
- Yfirlit yfir tímabókanir í heilbrigðiskerfinu – undir hnappinum Heilsa.
- Yfirlit yfir greiðslur frá Tryggingastofnun og gögn vegna mála hjá þeim – undir hnappinum Framfærsla.
Margt í Ísland.is appinu
Þú hefur líka aðgang að ýmsum upplýsingum og þjónustu af Mínum síðum í Ísland.is appinu. Þar er áherslan á gögn og upplýsingar sem almenningur nýtir sér dags dagslega, þar má meðal annars finna:
- Stafræna pósthólfið.
- Stafræn ökuskírteini og fleiri opinber skírteini, auk skanna til staðfestingar á skírteinum annara.
- Upplýsingar um stöðu umsókna hjá opinberum stofnunum.
- Kílómetraskráningu fyrir ökutæki í þinni eigu.
- Upplýsingar um bólusetningar, lyf og fleira sem tengist heilbrigðiskerfinu.
- Upplýsingar um Loftbrú og afsláttarkóða fluggjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni.
Umræða

