Gengur í suðaustan storm í fyrramálið með snjókomu og lélegu skyggni, og síðar rigningu
Vegagerðin varar við að hviður verði yfir 35 m/s á Reykjanesbraut, og yfir 45 m/s á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og undir Eyjafjöllum. Stórhríð á Hellisheiði og í Þrengslum. Veðrið gengur niður á þessum slóðum um og eftir hádegi, en víða hríð á fjallvegum um norðanvert landið þá og snarpar vindhviður í Öræfum. Lægir um land allt annað kvöld.
Umræða


