• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fundur Samtaka sparifjáreigenda: Spjótin beinast að lífeyrissjóðunum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. apríl 2018
in Óflokkað
A A
0

Stöðva verður þróun ofurlauna sem er hafin á ný

,,Umræður á öðrum fundi samtaka sparifjáreigenda um hrunið, sem haldinn var í Öskju í hádeginu, benda til þess að spjótin muni í vaxandi mæli beinast að lífeyrissjóðunum á þann veg, að fulltrúar þeirra í stjórnum skráðra fyrirtækja verði að stöðva þá þróun ofurlauna sem hafin er á ný.“ Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. ritstjóri Morgunblaðsins.

Ein af ástæðunum er augljóslega sú, að þessi launaþróun mun, ásamt launaákvörðunum Kjararáðs síðustu misseri, leiða til kröfugerðar af hálfu verkalýðsfélaganna, sem flest fyrirtæki í landinu geta ekki staðið undir.

Athygli vakti að Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi var á fundinum og vakti athygli á launakjörum forstjóra Eimskips og að lífeyrissjóðir ættu 52% hluti í Eimskip samanlagt. Þá vakti athygli athugasemd, sem Örn Pálsson bar fram á fundinum en hann kvaðst hafa lagt til á aðalfundi síns lífeyrissjóðs, að sjóðurinn beitti sér fyrir lækkun launa forstjóra tiltekinna fyrirtækja og að sú tillaga hefði fengið 7 atkvæði.
Benedikt Jóhannesson, fyrrum fjármálaráðherra var annar frummælenda. Hann sagði meðallaun í landinu vera 650 þúsund krónur á mánuði og kvaðst hafa haft tæpar tvær milljónir í laun á mánuði, sem fjármálaráðherra og komist vel af á þeim launum. Það eru um þreföld meðallaun en enginn var þó tilbúinn til að segja að laun, sem væru hærri en það teldust til ofurlauna.
Hinn frummælandinn, Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur, varpaði fram þeirri spurningu, hvers vegna bankamenn og forstjórar þyrftu meiri hvatningu í launum en aðrir.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?