Setjum öryggið á oddinn í bænum okkar
Öryggi er mál sem snertir okkur öll og þegar fólki finnst það ekki öruggt á sínu eigin heimili þá er verið að gera eitthvað rangt, talsverð ólga hefur verið meðal bæjarbúa og víðar um land og því þarf að breyta.
Það er mjög algengt að íbúar séu að skrá niður bílnúmer á ókunnugum bílum sem hafa verið að hringsólast um hverfið og svo hafa margir sett upp öryggismyndavélar og þjófavarnarkerfi í húsin sín út af hræðslu og öryggisleysi.
Afhverju þurfa almennir borgarar að vera hræddir um öryggi sitt og afhverju er ekkert gert í þessum málum. Íbúar eiga ekki að þurfa að koma heim úr vinnunni hræddir um að einhver ókunnugur sé búinn að vaða inn á skítugum skónum og ræna verðmætum þeirra og börn eiga ekki að þurfa að vera hrædd við að koma heim eftir skóla með þann hugsunarhátt að einhver óboðinn gestur sé hugsanlega inni á heimilinu þeirra.
Bæjarstjórnin í Garðabæ er nýbúin að samþykkja að setja upp 11 nýjar myndavélar í bænum en hvernig á það að hjálpa ef þessi glæpagengi koma labbandi og fara síðan svo bara heim í strætó.
Það hefur verið rætt í einstökum hverfum að íbúar hverfanna taki sig saman og greiði fyrir sýnilega öryggisgæslu fyrir hverfið sitt. Sú spurning vaknar að ef lögreglan telur sig ekki getað verið sýnilegri í Garðabæ að Garðabær stofni nýtt svið innan bæjarins sem sinni öryggismálum í bænum.
Hvernig má það vera að fyrirtæki eins og Ikea geti haft öryggisgæslu allan sólahringinn til að passa eina strágeit um jólahátíðina en Garðabær geti ekki tryggt öryggi íbúa sinna. Tímar hafa breyst, fólk getur ekki lengur skilið eftir ólæstar íbúðir og bíla og koma þarf með lausnir sem virka.
Íbúar Garðabæjar gera þá kröfu um lífsgæði að eignir þeirra og fjölskyldunnar séu óhultar, íbúar eiga ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að eignunum þeirra verði stolið, jafnvel um hábjartan dag.
Þorsteinn Ari Hallgrímsson
Höfundur situr í 10. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ.