Allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út að horni Bræðraborgarstíg og Vesturgötu. Eldur er laus í húsi á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstíg og er fólk hvatt til að halda sig fjarri. Við hvetjum íbúa á svæðinu til að loka gluggum og hækka vel í ofnum. Að sögn sjónarvotta sem rúv ræddi við, eru tveir menn á efstu hæð hússins, en óvíst sé hvort þeir hafi komist út.
Stúlka sást kasta sér út um glugga hússins og niður í ruslagám. Lögregla og sjúkralið er á staðnum og víkingasveit Ríkislögreglustjóra var einnig kölluð til aðstoðar. Enn logar eldur út um glugga og fjórir hafa verið fluttir á sjúkrahús.
Skömmu eftir klukkan hálf fjögur var þrennt leitt út í lögreglubíl út úr húsinu, tveir karlar og ein kona.
Slökkvilið lokaði Vesturgötu þegar það kom á staðinn. Að sögn sjónarvotta hefur hópur fólks nú safnast saman við götulokunina og freistar þess að komast að húsinu sem brennur. Sjónarvottar segja í viðtlaið við rúv að þar sé um að ræða aðstandendur þeirra sem í húsinu dvelja.