• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 9. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilboð í byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn samþykkt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. júlí 2022
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0
Tilboði Húsheildar ehf í byggingu 30 rýma hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði hefur verið samþykkt af heilbrigðisráðuneytinu fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Sveitarfélaginu Hornafirði.

Um er að ræða viðbyggingu við eldra heimili, Skjólgarð, en þar eru nú 27 hjúkrunarrými, flest í tvíbýli. Húsnæði Skjólgarðs uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til húsnæðis og aðbúnaðar á hjúkrunarheimilum í dag. Fyrirhuguð framkvæmd er annars vegar nýbygging upp á 1.400 m² að stærð og hins vegar breytingar á núverandi byggingu sem er 880 m² að stærð eða samtals 2.280m².

Nýja hjúkrunarheimilið verður reist á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Víkurbraut 31. Heilbrigðisráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður munu standa saman að byggingu hússins og breytingum sem gerðar verðar á hluta eldra húsnæðis í tengslum við framkvæmdina.

Miðað er við að framkvæmdir við heimilið hefjist á haustmánuðum 2022 og að það verði tekið í notkun árið 2024. Áætlaður framkvæmdakostnaður vegna byggingar hjúkrunarheimilisins eru tæplega 2,5 milljarðar króna. Verkefnið verður fjármagnað þannig að ríkissjóður greiðir 75,3% heildarkostnaðar en sveitarfélagið Hornafjörður 24,7%.

Umræða
Share8Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Netsvindl, fjárkúgun og fleira

    Laus hundur veittist að barni

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Vaxandi austan- og suðaustanátt – norðanhríð á norðvesturlandi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?