• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar eyddi tundurdufli

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. október 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Um hádegisbil í gær hafði skipstjóri íslensks togskips samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að djúpsprengja hefði komið í veiðarfæri skipsins. Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út og hélt áleiðis til Siglufjarðar en skipið var á siglingu norður af landinu og áætlaði að landa í bænum. Séraðgerðasveitin var komin á Siglufjörð í gærkvöld og hélt strax til móts við skipið á slöngubát. Á öðrum tímanum í nótt var sveitin komin um borð í skipið og hífði djúpsprengjuna sem reyndist vera tundurdufl í bátinn og fór með það í land.

Um hádegisbil í dag var farið með tundurduflið út á Siglunes þar sem því var eytt. Um var að ræða breskt tundurdufl frá seinni heimsstyrjöldinni og enn þann dag í dag kemur það reglulega fyrir að um áttatíu ára gömul vígtól komi í veiðarfæri íslenskra fiskiskipa. Landhelgisgæslan þarf reglulega að eyða slíkum sprengjum sem geta reynst stórhættulegar, sérstaklega í ljósi aldurs þeirra og hugsanlegrar tæringar.

Sjaldan er ein báran stök því slökkviliðsstjórinn á Siglufirði hafði einnig samband við séraðgerðasveitina sem var stödd í bænum vegna tundurduflsins og tjáði sprengjusérfræðingunum að í morgun hafi hann fengið vitneskju um áratugagamlar hvellhettur fyrir dínamít sem nauðsynlegt væri að eyða. Sveitin brást hratt og vel við beiðni slökkviliðsstjórans og eyddi hvellhettunum örugglega. Dagurinn á Siglufirði var því nokkuð annasamur fyrir sprengjusérfræðingana.

Meðfylgjandi myndir sýna tundurduflinu eytt en myndbandið er tekið í um 300 metra fjarlægð.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Verð á eldsneyti lækkar

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?