Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmikilli rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi.
Vegna þeirra rannsókna var starfandi lögmaður handtekinn þann 18. nóvember síðastliðinn grunaður um skipulagða brotastarfsemi sem felst í skipulagðri starfsemi til að aðstoða útlendinga við að koma ólöglega til landsins, peningaþvætti og fíkniefnamisferli.
Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði lögmanninn í vikulangt gæsluvarðhald og hefur verið lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum. Málið er í rannsókn og beinist rannsóknin meðal annars að því að upplýsa hvaða fleiri aðilar tengist starfseminni.
Umræða

