Maðurinn sem leitað hefur verið að í og við Ölfusá frá því í gærkvöldi heitir Páll Mar Guðjónsson fæddur 28. júlí 1968 til heimilis að Stekkholti 11 á Selfossi.
Hann er ókvæntur og barnlaus. Á vef lögreglunnar kemur fram að aðstandendur hans vilja þakka viðbragðsaðilum umfangsmikið og óeigingjarnt starf við leitina.
Veður til leitar hefur farið batnandi í dag og verður leitað fram í myrkur í kvöld. Aftur verður hafist handa við leit í fyrramálið ef leit í dag ber ekki árangur.
Umræða