Í úttekt Viðskiptaráðs á áhrifum innleiðingar ETS-kerfis Evrópusambandsins hér á landi má sjá að innan tveggja ára mun farmiðaverð milli Íslands og Evrópu hækka um 10-12 þúsund krónur.
Fjallað er ítarlega um málið í þættinum Spursmál og þar segir að það sé afleiðing af því hversu illa innleiðing kerfisins kemur niður á ríki sem staðsett er á eyju langt norður í ballarhafi þar sem enginn möguleiki er á að flytja fólk eða vörur með öðrum ferðamátum á borð við lestir.
Leggst á Ísland af fullum þunga
Vissulega væri mögulegt að sigla fólki til og frá landinu með öllum þeim kostnaði sem fylgir tímafrekum ferðamáta af því tagi en vandinn er sá að ETS-kerfið leggst einnig af fullum þunga á skipaflutninga sem er önnur mikilvægasta lífæð flutninga milli Íslands og meginlandsins.
Áhrifa ETS-kerfisins eru gerð ítarleg skil í nýjasta þætti Spursmála þar sem hagfræðingur Viðskiptaráðs, Ragnar S. Kristjánsson og Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur og höfundur bókarinnar Hitamál, fara yfir málin.

