Útgerðarfélagið Oddi hefur um árabil átt hluta þess húsnæðis sem einnig hýsir Björgunarsveitina Blakk. Þann 11. febrúar, afhenti Skjöldur Pálmason framkvæmdastjóri Odda björgunarsveitinni húsnæðið, sem er um 300 fermetrar að stærð og sambyggt núverandi húsnæði sveitarinnar.
,,Ljóst er að þessi höfðinglega gjöf breytir aðstöðu sveitarinnar mjög til hins betra, enda hefur starf sveitarinnar verið í miklum blóma og þörf á stærra húsnæði. Markmið Odda með gjöfinni er að styðja við það mikilvæga og ómetanlega starf sem björgunarsveitin sinnir í samfélaginu, sagði Skjöldur við afhendinguna.Hjá Odda er litið á það sem samfélagslega skyldu fyrirtækisins að leggja sitt af mörkum á meðan burðir leyfa”

Oddi hefur áður komið myndarlega að því að styrkja björgunarstarf á sunnanverðum Vestfjörðum en fyrirtækið hefur lagt söfnun fyrir nýju björgunarskiði myndarlega lið.
Félagar í Blakki eru að vonum himinlifandi með nýja aðstöðu sem kemur til með að skipta sköpum til að efla enn frekar starf sveitarinnar til framtíðar og þakklátir Odda fyrir höfðinglegan stuðning, nú sem áður.
Meðfylgjandi er ljósmynd Landsbjargar sem birti frétt á vef sínum, af húsnæði sveitarinnar. Gjöfin er bilið hægra megin við núverandi bil sem sveitin á, næsta stóra hurð og að mæni hússins. Einnig er ljósmynd af þeim Skildi og Siggeiri Guðnasyni formanni Blakks.

