• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 7. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sykurskattur óskilvirkt neyslustýringartæki

Sykurskattur óskilvirkt neyslustýringartæki

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Viðskiptaráð varar við því að gripið verði til sértækrar skattlagningar á tilteknar matvörur, svo sem sykurskatts, í tengslum við fyrirhugaða aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn offitu. Ráðið bendir á að slíkir skattar séu óhentugt stjórntæki, hafi takmörkuð áhrif á neyslu og heilsufarslegar útkomur og geti aukið flækjustig og kostnað í skatta- og regluumhverfi. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs um aðgerðaáætlun um málefni offitu

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu, sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda þann 11. febrúar síðastliðinn.

Viðskiptaráð telur brýnt að vara við því að gripið verði til sértækrar skattlagningar á tilteknar matvörur, svo sem sykurskatts, líkt og velt er upp í fyrstu aðgerð í drögunum. Slík skattlagning er óhentugt stjórntæki og felur einnig í sér aukna neyslustýringu, sem dregur úr velferð neytenda.

Reynsla erlendis sýnir einnig að áhrif slíkra skatta á neyslumynstur og heilsufarslegar útkomur séu takmörkuð. Neysla getur færst yfir í aðrar óhollar vörur sem ekki falla undir skattinn, án þess að heildarneysla eða heilsufarsáhætta minnki. Á sama tíma auka sértækir skattar flækjustig og kostnað í skatta- og regluumhverfi fyrirtækja. Skattkerfið ætti fyrst og fremst að þjóna sem tekjuöflun fyrir nauðsynleg verkefni ríkisins, en ekki vera nýtt sem óskilvirkt neyslustýringartæki.

Viðskiptaráð telur mikilvægt að áhersla verði lögð á jákvæða hvata, fræðslu og almennar aðgerðir sem styðja heilbrigðar lífsvenjur, fremur en sértækar álögur á einstaka vöruflokka sem bitna á samfélaginu í heild en ekki aðeins þeim hópi sem þær miðast að. Ákvarðanir um hagræna hvata ættu ætíð að byggjast á traustum gögnum, heildstæðu mati á áhrifum og skýrri kostnaðar- og ábatagreiningu.

Lesa má umsögnina í heild sinni hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Kröpp og djúp lægð vestur af landinu

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    55 deilingar
    Share 38 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?