Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 sem styrkir stoðir íslensks efnahagslífs með auknum aga og festu í ríkisfjármálum. Áætlunin markar skýr tímamót þar sem hallarekstur ríkissjóðs verður stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Ábyrg ríkisfjármál eru lykilforsenda lægri vaxta og stöðugleika fyrir heimili, fyrirtæki, fjárfestingu og aukna verðmætasköpun.
Grunnur lagður fyrir lækkun vaxta
Markmið áætlunarinnar er að skapa stöðugleika í efnahagslífinu til að takast á við breyttar aðstæður. Undanfarin ár hafa einkennst af hægari hagvexti og meiri óvissu en áður. Þessum aðstæðum þarf að sýna viðspyrnu með skýrri forgangsröðun og ábyrgri stefnu í ríkisfjármálum. Bætt afkoma ríkissjóðs leggur grunn að lægri verðbólgu og þ.a.l. lægra vaxtastigi, sem hefur bein og jákvæð áhrif á heimili og fyrirtæki.
Hagræðing og forgangsröðun
Áhersla er lögð á að halda aftur af vexti ríkisútgjalda og halda honum vel innan marka stöðugleikareglu, ásamt því að einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur. Áfram verður unnið að því að lækka skuldahlutfall hins opinbera og er áætlað að það lækki úr 44% af landsframleiðslu árið 2026 í 41% árið 2031.
Meðal nýrra hagræðingaraðgerða í þessari fjármálaáætlun er 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu þar sem stefnt er að því að spara tæplega 4 ma.kr. árlega, án skerðingar á grunnþjónustu. Tekjur ríkissjóðs verða styrktar með frekari umbótum á skattkerfinu.
Fjárfest í mikilvægum málaflokkum
Skýr áhersla er lögð á öfluga uppbyggingu og markvissa fjárfestingu. Forgangsröðun fjármuna tryggir að áfram verði fjárfest í grunninnviðum, sérstaklega í heilbrigðiskerfi, samgöngum, málefnum barna, menntamálum og öðrum lykilmálaflokkum sem styðja við verðmætasköpun, lífskjör og aukin lífsgæði.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra: „Staða íslenska hagkerfisins er í grunninn sterk og horfur til lengri tíma jákvæðar. Aðstæður krefjast þess þó að áfram sé haldið af festu og ábyrgð. Þegar ríkissjóður er vel rekinn þá gengur Íslandi vel. Með skýrri stefnu í ríkisfjármálum er lagður grunnur að stöðugra efnahagslífi og bættum lífskjörum til framtíðar.“

