Blaðamenn Morgunblaðsins segja þær upplýsingar sem byggt var á um tengsl árásarmanna við Hamas í Túnahverfi, hafi verið fengnar frá fleiri en einum heimildarmanni innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árásarmennirnir eru frá Palestínu. Morgunblaðið segir að heimildarmennirnir séu trúverðugir, starfandi lögreglumenn sem vísuðu til myndefnisins og sögðu það benda til umræddra tengsla og að lögregla kannaði þau. Morgunblaðið ráðfærði sig við heimildarmennina um efnistök áður en fréttin var birt og þeir staðfestu hana. Yfirlýsing Morgunblaðsins er hér að neðan:
Stangast á við heimildarmenn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir það rangt, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, að hluti þeirra sem handteknir voru eftir alvarlega líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í síðustu viku sé grunaður um tengsl við hryðjuverkasamtök.
Í frétt blaðsins kom einnig fram að lögregla væri að fara yfir myndefni úr símum hinna handteknu og að samkvæmt heimildum blaðsins hefðu nokkrir þeirra borið merki Hamas-samtakanna á því, sem og vopn, eins og það var orðað við blaðið.
Um hádegi í gær gaf lögreglan út yfirlýsingu þar sem sagt er að frétt Morgunblaðsins sé að hluta til röng. Segir í yfirlýsingunni að engar vísbendingar séu á þessu stigi rannsóknar um tengsl hinna handteknu við Hamas. Þá sé það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn, en blaðið sagði suma mannanna á þeim lista.
Enn er þó ekki búið að fara yfir öll stafræn gögn málsins á þessu stigi.
Traustir heimildarmenn
Þær upplýsingar blaðsins sem byggt var á voru fengnar frá fleiri en einum heimildarmanni innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Heimildarmennirnir eru trúverðugir, starfandi lögreglumenn sem vísuðu til myndefnisins og sögðu það benda til umræddra tengsla og að lögregla kannaði þau. Morgunblaðið ráðfærði sig við heimildarmennina um efnistök áður en fréttin var birt og þeir staðfestu hana.
Nokkrir aðrir lögreglumenn nálguðust Morgunblaðið í gær eftir lestur fréttarinnar og yfirlýsingu lögreglu og furðuðu sig á yfirlýsingunni, enda væri hún ekki í samræmi við upplýsingar innan lögreglunnar. Morgunblaðið leitaði eftir frekari upplýsingum og viðbrögðum innan lögreglunnar í gær, en þar vísaði hver á annan, en þó fékk blaðið staðfest að verið væri að fara yfir stafræn gögn og að lögregla væri ekki búin að ná að fara yfir allt efnið.
Lögreglan kvaðst í yfirlýsingu sinni leggja mikla áherslu á rannsóknina. Niðurstöður hennar munu skýrast eftir því sem líður á og Morgunblaðið mun fylgjast grannt með framvindu málsins.
Yfirlýsing lögreglu
„Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar.“

