• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 15. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Guðmundur Franklín: Það er enginn sem lýsir yfir gjaldþroti sér til gamans

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi skrifar um fyrirtækjarekstur á erfiðum tímum

Það er erfið og niðurbrjótandi lífsreynsla þegar fyrirtæki sem maður hefur lagt krafta sína í að sinna fer í þrot. Á þessum óvenjulegu og óvæntu tímum eru margir sem standa frammi fyrir þessum veruleika og ég veit það tekur þá nærri að horfa á eftir félaginu sínu til bankanna.
Það er enginn sem lýsir yfir gjaldþroti sér til gamans og því kemur mér alltaf á óvart sá svarti blettur eða „stigma“ sem margir vilja reyna að klína á heiðvirt fólk sem hefur sökum ytri aðstæðna orðið fyrir þessu. Það var enginn sem bjóst við heimsfaraldri. Það voru heldur ekki margir sem bjuggust við alheimskreppu á sínum tíma eða því að tæknibólan myndi springa.
Aðstæður sem þessar koma því miður upp og stundum veðja menn á rangan hest og verða þá að taka því eins og svo mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu í dag. Við eigum hins vegar ekki að úthrópa þá sem hafa orðið fyrir þessu heldur frekar styðja við bakið á þeim því þetta er alls ekki auðvelt.
Ég þekki marga góða menn sem eru nú að missa sitt lífsviðurværi sökum veirunnar og ég heyri hvað þeim þykir það sárt. Ekki bætir úr skák þegar aðgerðir stjórnvalda, sem eiga að hjálpa þeim, gera hið gagnstæða. Þessar sögur hafa rifjað upp hjá mér sárar minningar þegar mitt eigið fyrirtæki fór í gjaldþrot og langar mig að segja ykkur örlítið frá því.
Félag var og hét Handsal og það félag lenti í miklum fjárhagslegum hremmingum og meðal hluthafa í félaginu voru lífeyrissjóðir sem áttu meira en 70% af hlutaféinu. Mér var boðið að kaupa félagið á hrakvirði og reyna að bjarga því frá gjaldþroti sem ég og gerði. Ég gekkst þar í persónulegar skuldbindingar.
Guðmundur Franklín skrifaði um eigin reynslu á facebook

Handsal, endurskírt Burnham International gekk ágætlega fyrstu tvö árin eftir að ég keypti það. Perónulega var ég með um þriðjung hlutafjár í félaginu. Restin af hlutaféinu var í eigu annarra hluthafa en þar voru engir lífeyrissjóðir. Þeir voru á þessum tíma búnir að selja allan sinn hlut.
Ástæðan fyrir velgengninni í upphafi var vegna mikils uppgangs á mörkuðum og sérstaklega í nýjabruminu af netfyrirtækjum. Eftir aldamótin átti sér svo stað bankakreppa þegar fyrirtækjamarkaðurinn með internetfyrirtæki hrundi. Þar sem fjárfestingabók félagsins Burnham var að mestu leyti byggð á slíkum félögum þá hrundi hún með og varð Burnham gjaldþrota skömmu síðar.
Þar sem ég hafði gengist í persónulega ábyrgð, skall gjaldþrotið harkalega á mér sjálfum. Tekið hafði verið veð í mínum helmingi í heimili okkar hjóna sem varð til þess að við urðum að selja ofan af okkur. Þetta var mjög erfið lífsreynsla fyrir mig og mína fjölskyldu.
Segja má að ég hafi lent í lífsins ólgusjó og eftir á að hyggja þá hefði ég gert margt öðruvísi en það þýðir víst ekki að gráta Björn bónda.
Ég kenni engum öðrum en sjálfum mér um ófarir Burnham Int. en þessi reynsla kenndi það mér þá lexíu að ef menn ætla að vera í viðskiptum á Íslandi þá er eins gott að vera við gufugatið en ekki í annarri heimsálfu. Ég tel mig koma margs vísari eftir þessa reynslu og veitir hún mér m.a. skilning á þeim erfiðleikum sem samlandar mínir í fyrirtækjarekstri upplifa nú.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Niðurstaða um hvarf Geirfinns Einarssonar?

    ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    71 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Eftirlýst kona handtekin

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?