Þetta forsetaefni hafnaði því að fá hærra gjald fyrir þjóðina sína fyrir afnotarétt af auðlind landsmanna. Sat hún ekki í umboði almennings sem kaus hana til að verja og hámarka eigur landsmanna?
Hér er bara eitt litið brot hvers vegna ekki á að kjósa fyrrverandi forsætisráðherra okkar Katrínu jakobsdóttir. Svörin sem við fengum var að svona lögformlegt tilboð ætti ekki við. Eða með öðrum orðum, við viljum gefa kvóta þjóðarinnar til útvaldra sem styrkja okkur í næstu kosningum.
Auðvitað vill þjóðin sjá svona tilboð i afnotarétt af auðlindum þar sem vel er hægt að nýta meiri fjármuni til innviða svo sem leikskóla, í skólum, heilbrigðisþjónustu, vegamál og eldri borgara.
Hér bauð ég í óúthlutaðar aflaheimildir aflamark okkar landsmanna sem útgerðamenn fá til afnota eitt ár í senn og greiða útgerðir 25 þúsund fyrir afnotaréttinn.
Ég bauð 70 þúsund til þjóðarinnar og var hafnað. Getur sá sem er valinn til að gæta eigna annarra og hámarka arðsemi af þeirri eign. Hafnað rúmlega helmingi hærra tilboði sem þeir fá inná borð til sín?
Eru það ekki hreinlega svik við umbjóðendur sem eruð þið kæru lesendur?
Frumvarp Katrínar um að gefa firði Íslands – Nýtt gjafakvótakerfi