• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 18. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sýnatökur fyrir COVID-19 á landamærum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Verkefnisstjórn sem heilbrigðisráðherra skipaði til að undirbúa framkvæmd vegna sýnatöku og greiningar á COVID-19 meðal farþega sem koma til landsins, líkt og stjórnvöld áforma, skilaði skýrslu með niðurstöðum sínum í gær. Í stuttu máli er niðurstaða hópsins sú að miðað við gefnar forsendur sem lagðar voru til grundvallar sé verkefnið framkvæmanlegt en að leysa þurfi úr mörgum verkþáttum áður en hægt verður að hefjast handa við skimun á landamærum. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun og ákveðið að forsætisráðuneytið muni leiða næstu skref.Frá skilafundi verkefnisstjórnar í heilbrigðisráðuneytinuVerkefnisstjórnin var skipuð á grundvelli  tillögu heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra  um að stefna að því að bjóða  COVID-19 próf  við komuna til landsins í stað þess að  framvísa vottorði sem sóttvarnalæknir metur gilt eða sæta 14 daga sóttkví. Tillagan var kynnt ríkisstjórn 12. maí sl. Þessi kostur ætti að standa til boða eigi síðar en 15. júní og miðað við endurmat á verkefninu að tveimur vikum liðnum.
Eins og fram kemur í skipunarbréfi hópsins var verkefni hans skýrt afmarkað og ákveðnar forsendur lagðar til grundvallar, til að mynda varðandi afkastagetu veirufræðideildar vegna sýnatöku og greiningar, greiningartíma, kostnað o.fl.
Hildur Helgadóttir verkefnastjóriHildur Helgadóttir sem leiddi vinnu verkefnisstjórnarinnar kynnti niðurstöðurnar fyrir heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra á fundi í gær ásamt öðrum fulltrúum verkefnisstjórnarinnar. Fundinn  sat einnig sóttvarnalæknir. Eins og fram kemur í niðurstöðukafla meðfylgjandi skýrslu eru ýmis mál sem þarf að leysa og verkefni sem þarf að hrinda í framkvæmd til að hefja skimun á landamærum í samræmi við áætlun stjórnvalda. Verkefnið er engu að síður framkvæmanlegt að mati verkefnisstjórnarinnar eins og áður getur.
Ákvörðun um afléttingu ferðatakmarkana liggur ekki fyrir  og verður ekki tekin fyrr en tillögur sóttvarnalæknis til ráðherra þar að lútandi liggja fyrir.

  • Skýrsla verkefnisstjórnar um sýnatöku fyrir COVID-19 á landamærum

Heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir áhættumati Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri vegna fyrirhugaðra tilslakana á ferðatakmörkunum og eru þau gögn meðfylgjandi:

  • Heildarmat Landspítala
    Áhætumat sýkla- og veirufræðideildar Landspítala
     Áhættumat farsóttanefndar Landspítala
  • Áhættumat Sjúkrahússins á Akureyri
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

    Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    105 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Barn í lífshættu á þunnri íshellu

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Katrín sér ekki eftir neinu, nema tapinu í forsetakosningunum

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?