• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Play fór í loftið fljúgandi á undirboðum á vinnumarkaði“

Pistill forseta - Alþjóðlegir skattar og nei við einkarekstri og undirboðum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. júní 2021
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Leiðtogar stærstu ríkja heims reisa kröfur gegn skattaundanskotum 

Krumlur kófsins eru á undanhaldi og senn hefst uppgjörstíminn um heim allan, hvað tókst vel í sóttvörum og vinnumarkaðsaðgerðum. Það er engin tilviljun að skattkerfið er sett undir smásjána af þessu tilefni, enda hafa flest stjórnvöld opnað hirslurnar til að tryggja afkomu fólks. Það verður æpandi ósanngjarnt, sérstaklega á þessum tímum, að mörg stórfyrirtæki greiða sama sem engan skatt og það er sérstök fræðigrein að koma sér hjá skattgreiðslum um allan heim.

Ríkið gaf fjármagnseigendum sem keyptu í Íslandsbanka nokkra milljarða

Nú eru því hafnar löngu tímabærar samningaviðræður um alþjóðlegan fyrirtækjaskatt og verður tekist á um málið á vettvangi OECD og G20 ríkjanna um þessi mánaðamót. Annars vegar er rætt um skattlagningu alþjóðlegra fyrirtækja sem starfa á netinu og er tillagan á þá leið að ríki geti skattlagt hagnað sem verður til innan þeirra lögsögu. Hins vegar er rætt um alþjóðlegan lágmarksskatt á fyrirtæki og hefur hlutfallið 15% verið nefnt í því samhengi. Alþjóða verkalýðshreyfingin tekur undir þetta en vill hækka hlutfallið í a.m.k. 25% enda þarf að sækja fjármagn til þeirra sem eru aflögufærir. Það er bæði lykilatriði til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins og til að fjármagna nauðsynlegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Kófið hefur kennt okkur það að enginn getur verið undanskilinn stóra samhenginu – enginn getur stimplað sig út úr samfélaginu fyrir eigin gróða.

Það eru stórtíðindi þegar leiðtogar stærstu ríkja heims reisa kröfur gegn skattaundanskotum og það er til marks um viðsnúning í heimsstjórnmálunum. Frá óheftri markaðshyggju til einhvers konar vísis að samtryggingu. Hér á landi er hins vegar þrennt að gerast sem gengur í berhögg við þessa þróun.

Ríkið gaf fjármagnseigendum og þeim sem gátu keypt sér hlut í Íslandsbanka nokkra milljarða úr almannasjóðum við söluna á bankanum. Ekki almenningi, heldur þeim sem eru aflögufærir og bröskurum, þar með talið alþjóðlegum fjárfestingasjóðum. Við þessu hafði verkalýðshreyfingin varað.

Einkavæðing í öldrunarþjónustu er hafin af fullum krafti og ljóst að fyrirtæki sem taka að sér einkarekstur ætla ekki að gera það af hugsjóninni einni saman, það sannaðist þegar uppsagnirnar hófust: Það á að „lækka starfsmannakostnað“ sem þýðir á alþýðumáli að lækka laun. Ríkið greiðir svo brúsann, þar með talið arðinn til hluthafa fyrir markaðsvæðingu á lífi og heilsu gamla fólksins.

Play fór í loftið fljúgandi á undirboðum á vinnumarkaði, gerandi samning um kjör flugfreyja og -þjóna án aðkomu flugfreyja- og þjóna og kynnir sig fyrir fjárfestum með yfirlýsingu um að það fyrirtæki geti umfram önnur „haldið starfsmannakostnaði niðri“. Þeirri baráttu er langt í frá lokið.

Baráttunni við heimsfaraldurinn er hins vegar að ljúka, a.m.k. í bili, og það voru gleðifréttir í dag þegar tilkynnt var að öllum takmörkunum yrði aflétt innanlands. Það er ávísun á gott sumar en við uppgjör þessa tímabils og við skrefin framundan er ljóst að baráttunni fyrir sanngjörnum launum og réttlátri dreifingu auðsins er hvergi nærri lokið. Við munum áfram standa vaktina!

Gleðilegt sumar kæru lesendur

Góða helgi, Drífa

Umræða
Share59Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?