• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Julian Assange, George Orwell & ofsóknir nútíðar

Hallur Hallsson, skrifar

Julian Assange, George Orwell & ofsóknir nútíðar

MÉR HÓTAÐ 4RA ÁRA FANGELSI

Hallur Hallsson skrifað af Hallur Hallsson
26. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0
Hallur Hallsson skrifar
Julian Assange stofnandi Wikileaks hefur verið látinn laus. Því fagna allir lýðræðissinnar. Fjórtán ár eru frá því Assange afhjúpaði stríðsglæpi Bandaríkjanna í Afganistan og Írak. Það er flottasta blaðamennska 21. aldar. Árið var 2010. Ofsóknir á hendur Assange hófust strax í nóvember 2010.
Svíar tóku að sér skítverk og gefin var út evrópsk handtökutilskipun. Assange flúði í sendiráð Ekvador í London 2012 og fékk hæli á grundvelli pólitískra ofsókna. Svíar ofsóttu Assange til 2019 þegar rannsókn var hætt. Ekvador hætti að veita Assange skjól. Breska lögreglan stormaði sendiráðið og Assange var varpað í Belmarsh fangelsi í London, haldið í fimm ár frá 2019 til 2024.

ASSANGE & GEORGE ORWELL

Líklega verður Assange hissa þegar hann nú fagnar frelsi. Vestrænir fjölmiðlar hafa grímulaust breyst í 4ða vald ríkisins, háværa áróðursmaskinu. Helstu fjölmiðlar okkar eru á ríkisfé með ríkisfréttir; eina og sömu frétt á rauntíma, Marteinn Mosdal með einn ríkissannleik. Ritskoðun hefur verið innleidd um öll Vesturlönd. Í aðdraganda covid var blaða- og fréttamönnum skipað í “framvarðasveit ríkislögreglustjóra.” Skúli Sveinsson lögmaður benti fyrstur á “samræmdan sannleika á rauntíma; Trusted News Initiative”. Spádómur George Orwell í 1984 hefur ræst; sannleikur er lygi. Lygi er sannleikur gjallarhornum ríkis- og ríkramiðlum. Assange okkar tíðar er Winston Smith, söguhetja Orwell í 1984. Stríð okkar tíðar í Úkraínu, langt, langt í burtu endalaust stríð. Alþingi undir erlendum fána myrkvað.

MÉR HÓTAÐ 4RA ÁRA FANGELSI

Með RÚV í broddi fylkingar flytja fjölmiðlar okkar tíðar samræmda lygi sem þeir kalla sannleik og ofsækja þá sem efast, já fólkinu í landinu er bannað að efast. Hugsanalögreglan; Thought Police mætir á vettvang. Ég hef fjallað um svokallað fósturvísamál sem fjölmiðlar þegja og þagga. Mér var hótað 4ra ára fangelsi fyrir að fjalla um stuld tæknifrjóvgunarfirmans Art Medica á nítján fósturvísum í eigu hjónanna Gunnars Árnasonar og Hlédísar Sveinsdóttur. Fósturvísar voru afhentir vandalausum. Rökstuddur grunur er um að lífbörn hjónanna séu út í bæ og þekki ekki uppruna sinn.

1984 ER MEÐ OKKUR

Ég var kærður og sakaður um umsáturs-einelti. Lögregla stormaði norður yfir heiðar. Ég, einn reyndasti blaðamaður landsins sakborningur, yfirheyrður og þess krafist að meðan ég tóri verði mér bannað að fara frjáls um Reykjavík og Garðabæ. Það heitir nálgunarbann. Þetta er atlaga að réttarríkinu. Hvorki ríkis- eða ríkramiðlar hafa tekið mál mitt upp, enginn þingmaður hefur gert það. Kröfu lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins Höllu Bergþóru Björnsdóttur var hafnað en 1984 er með okkur. Hugsanalögreglan er mætt …

Umræða
Share14Tweet9
Hallur Hallsson

Hallur Hallsson

Hallur Hallsson einn stofnenda Dagblaðsins 1975, blaðamaður á Morgunblaðinu 1979-1986, fréttamaður á Sjónvarpinu 1986-1989, Stöð 2 1989-1994, álitsgjafi ÍNN 2008-2020

AUGLÝSING
  • Fólk hringir í Neyðarlínuna eftir sjúkrabíl til að losna við bið á Bráðamóttöku

    Vélhjólaslys

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Rannsókn á andláti

    359 deilingar
    Share 144 Tweet 90
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?