Veðurhorfur á landinu
Norðvestan og vestan 5-13 m/s síðdegis og dálítil rigning eða súld, en hægari vindur og skúradembur austantil á landinu. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Víða norðvestan 5-13 á morgun. Súld eða rigning á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti frá 7 stigum við norðurströndina, að 19 stigum á Suðurlandi. Lægir og styttir upp annað kvöld.
Spá gerð: 26.07.2025 10:38. Gildir til: 28.07.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis sunnan- og vestanlands og fer að rigna. Hægari vindur og bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Á þriðjudag:
Sunnan 5-13 með rigningu eða súld, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Suðvestan og vestan 3-8 og skúrir, en léttskýjað austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á fimmtudag:
Vestan og norðvestan 3-8 og dálítil væta á köflum, en léttskýjað á suðaustanverðu landinu. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á föstudag:
Suðvestan 3-8. Lítilsháttar væta á vestanverðu landinu, annars þurrt að kalla og bjart með köflum. Hiti víða 12 til 18 stig.
Spá gerð: 26.07.2025 08:54. Gildir til: 02.08.2025 12:00.