Sextán ára piltur var í gærkvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. ágúst á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni á Menningarnótt.
Eins og fram hefur komið er hann grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld, en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftólfleytið og var hún með mikinn viðbúnað vegna málsins. Sökum ungs aldurs verður pilturinn vistaður með viðeigandi hætti á meðan gæsluvarðhaldið varir.
Ungmennin, sem urðu fyrir árásinni, voru öll flutt á slysadeild, en eitt þeirra slasaðist mjög alvarlega og er í lífshættu.
Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynninga embættisins um málið, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.
Umræða