Búið er að loka fyrir umferð um Krýsuvíkurveg vegna umferðaróhapps sem var á veginum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að engin slys hafi orðið á fólki, en að unnið sé að því að opna veginn.
Kranabíll féll á hliðina á veginum og er nú verið að rétta hann við en ekki er vitað hvað olli því að kraninn féll á hliðina.
Tekið er fram að til að opna veginn þurfi stórtækar vinnuvélar og að sú vinna muni taka um eina og hálfa klukkustund.
Ökumenn eru beðnir um að virða þessa lokun og gefa viðbragðsaðilum rými til starfa á vettvangi.
Umræða