,,Þetta var ótrúleg lífsreynsla“
Út er komin barnabókin Um langan veg eftir Gunnar Bender. Nýfætt stúlkubarn finnst yfirgefið í böggli um nótt fyrir utan barnaheimili í Hunanhéraði í Kína og sagan segir frá því þegar stúlkan hittir nýja foreldra sem taka hana með sér um langan veg vil Íslands þar sem hún gengur í skóla og kynnist öðrum krökkum. Dag einn rekst hún óvænt á stúlku sem einnig er ættleidd frá Hunanhéraði en þær eiga fleira sameiginlegt þegar betur er að gáð.
,,Þetta var ótrúleg lífsreynsla að fara til Kína og vera þar í 16 daga enda missti maður um 8 kg, maturinn var alls ekki góður þarna,, sagði Gunnar Bender í samtali við Fréttatímann er hann rifaði upp ferðina á sínum tíma.
,,Í Kína er bara allt annað þjóðfélag og hlutirnir sumir hverjir langt á eftir öðrum löndum. Svoleiðis er þetta bara í Kína, en þetta var mikil lífsreynsla,, sagði Gunnar ennfremur. Höfundirinn Gunnar Bender fór ásamt þáverandi konu sinni til Kína árið 2004 til að ættleiða stúlkubarn og er bókin frásögn úr þeirri ferð. Guðni R Björnsson myndskreytir bókina sem er 32 blaðsíður í stóru broti og prentsmiðjan Litróf ehf. prentar. Bókin er seld í bókaverslunum um land allt.