• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Hætt verði að miða við fæðingardag barns þegar breytingar eru gerðar á fæðingar- og foreldraorlofi

Hætt verði að miða við fæðingardag barns þegar breytingar eru gerðar á fæðingar- og foreldraorlofi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
26. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. 

Í frumvarpinu eru lagt til að breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra sem nýta rétt sinn innan fæðingarorlofskerfisins miði ekki lengur við fæðingardag barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur heldur skuli slíkar breytingar eiga við um alla foreldra í fæðingarorlofi og þá sem eiga rétt á slíkum greiðslum þegar breytingarnar taka gildi. 

Í frumvarpinu er einnig lagt til að breytingar á fjárhæðum greiðslna á grundvelli laga um sorgarleyfi skuli eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað.

„Ég er stolt af því að mæla fyrir þessum breytingum hér í dag sem ég tel vera mikið framfaraskref fyrir foreldra og fjölskyldur og styðja enn betur við fólk þegar það stendur á tímamótum – gleðistundum nýrrar fjölskyldu eða erfiðustu augnablikum sorgar. Ég bind miklar vonir við að þingið sameinist um að styðja þessa mikilvægu réttarbót,“ sagði Inga Sæland í framsöguræðu sinni.

„Með fyrirhuguðum breytingum er leitast við að tryggja betur afkomuöryggi foreldra í fæðingarorlofi og sorgaleyfi og eyða óvissu þeirra um hverjar fyrirhugaðar tekjur verði á því tímabili í lífi þeirra. Með þessum breytingum mun jafnræði milli foreldra í fæðingarorlofi janframt verða betur tryggt og samræmi aukast í greiðslum til þeirra.“

Hverju breytir frumvarpið?

Frumvarpið sjálft inniheldur ekki breytingar á fjárhæðum heldur felur það í sér tillögu að því til hverra breytingar á fjárhæðum ná.

  • Nýja fyrirkomulagið yrði þannig að þegar breytingar eru gerðar á þeim fjárhæðum sem fólk fær greiddar í fæðingar- og foreldraorlofi þá myndu þær ná til allra sem væru í slíku orlofi eða ættu rétt á því þegar breytingarnar tækju gildi. 
  • Fyrirkomulagið í dag er þannig að breytingar á fjárhæðum ná einungis til foreldra þeirra barna sem fæðast eftir að breytingarnar hafa tekið gildi.

Hvað gerist um áramótin?

Samkvæmt lögum sem samþykkt voru árið 2024 munu hámarksgreiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi næst hækka um áramótin. Þá hækka hámarksgreiðslur úr 800.000 kr. í 900.000 kr. á mánuði.

Verði ofangreint frumvarp að lögum nú á haustþingi hefur það í för með sér að hækkunin á hámarksgreiðslunum mun ná til allra sem eiga rétt á fæðingar- og foreldraorlofi þann 1. janúar nk. Barn þarf þannig ekki að fæðast eftir áramót til að breytingin skili sér til foreldra þess heldur gæti barnið hafa fæðst árin 2024 eða 2025. 

Samsvarandi breytingar gilda um þau sem eiga rétt á sorgarleyfi þann 1. janúar nk.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    135 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Sturluð staðreynd

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?