Undanfarnar vikur hafa reglulega komið fram tilkynningar um furðuleg ljós og hluti á flugi yfir Suðvestur horninu. Tilkynningar hafa meðal annars borist frá Suðurnesjum, Hveragerði og Selfossi sem og frá Kársnesi í Kópavogi, þar sem flugmaður telur sig hafa séð geimskip.
Hjón sem voru á leið frá Hveragerði til Selfoss í síðustu viku, sáu undarlegt ljós sem stefndi frá Hveragerði og í átt að Selfossi. ,,Við rákum augun í þetta óvenjulega skæra ljós á himni fyrir tilviljun og fannst það mjög einkennilegt. Stöðvuðum bifreiðina og horfðum til himins til þess að reyna að átta okkur á hvaða skæra ljós þetta væri.
Það var á miklu meiri hraða en t.d. drónar ná og of lágt á lofti til að geta verið gervitungl eða stjarna. Þá var engin flugvél á ferðinni, skv. ,,flight radar.“ Enda er þetta ekki hefðbundin flugleið og að auki eru þær með blikkandi ljós en ekki svona skært ljós og hefði sést vel. Þegar við gátum útilokað allt sem gat komið til greina, þá er þetta loftfar einhver fljúgandi furðuhlutur sem við þekkjum ekki og höfum aldrei séð fyrr. Þetta var ekki starlink. ég Googlaði öll video af því.“
Fljúgandi furðuhlutur sást yfir Kársnesi – íslenskur flugmaður telur sig hafa náð skýrri UFO-mynd
Skömmu síðar birtist frétt í Nútímanum með ofangreindri fyrirsögn, þar sem Íslenski flugmaðurinn Kjartan Norðdahl segir að ljósmynd sem hann tók á Kársnesinu í Kópavogi sýni „skýrt geimskip“.
,,Kjartan hafði verið úti að ganga með hundinn sinn þegar hann var að mynda norðurljósin. Þegar hann stækkaði eina myndina heima við, segist hann hafa séð fyrirbæri sem hann telur ekki geta átt sér hefðbundna skýringu.“ Segir í fréttinni. Þá hafa verið tilkynningar frá fleiri aðilum.

Þá vakti maður athygli á mjög sérstöku flugi einhvers fljúgandi furðuhluts á himni og birti af honum myndir sem eru hér að neðan. Þessar tilkynnigar um fljúgandi furðuhluti og fleiri hafa verið að birtast undanfarinn hálfan mánuð.
Í viðtali við vitni sem sá slíkan furðuhlut á flugi á dögunum, tjáði hann fréttamanni að hann ætlaði að fara í leiðangur með heitt kaffi á könnunni og smyrja sér nesti og dvelja í bíl sínum í kringum höfuðborgarsvæðið og í Árnessýslu.
,,Ég er vel útbúinn og fer af stað fyrir miðnætti á hverju kvöldi undanfarna sólarhringa og sit í myrkrinu með öll ljós slökkt og kveikt á myndavél og myndbandsupptöku.
Miðað við hvað margir hafa upplifað sömu eða svipaða sjón og ég, þá er ég vongóður um að ná góðum myndum.“ Sagði áhugamaðurinn um þessa fljúganid furðuhluti sem virðast vera á sveimi á meðan við hin sofum.


