
Mikil alvara er hjá Trump að yfirtaka Grænland og í raun er það hárrétt ákvörðun hjá þeim mikla meistara og eingöngu gert í varnarskyni fyrir heiminn. Ísland er ekki minna mikilvægt land fyrir Bandaríkin.
Vegna þess að Grænland er hernaðarlega mikilvægt land gagnvart löndum í Austri og þá sérstaklega Rússlandi, hefur Trum áform um að kvítta fyrir Grænlandi og gera landið frábært á ný eins og Ameríku.
Við sem erum um miðjan aldur munum mjög vel eftir því þegar Bandaríski herinn var á Íslandi og lagði undir sig Keflavíkurflugvöll. Umsvif hers Bandaríkjana hefur verið að aukast þar undanfarin ár og stefnt er að enn frekari uppbyggingu á varnarsvæðinu.
Gjaldeyrir mun flæða inn í landið sem hjálpar okkur við að greiða með tapi þjóðarinnar á stórútgerðinni sem stjórnmálamenn gáfu kvótann, sem og samgöngum til laxeldisfyrirtækja sem eru undir sama hatti.
Bandaríkin yfirtaki Ísland
Að þessu sögðu, væri þá ekki eðlilegt að Bandaríkin yfirtækju Ísland eins og Grænland? Bæði þessi lönd hafa verið undir Danmörku eða allt til þess tíma að Jón Sigurðsson, forseti og landráðamaður náði landinu undan hinu góða danska flaggi.
Frá þeim tíma höfum við sannað það ár hvert í marga áratugi að Íslendingar geta ekki stjórnað eigin málum.
Það er búið að eyðileggja landið og miðin af stjórnmálamönnum. Gefa auðlindir hafsins að mestu til sex til átta fjölskyldna. Gefa flesta firði landsins undir mengandi laxeldi sem eyðileggur að auki allar laxveiðiár landsins, til Norðmanna. Raforkan er gefin til erlendra stórfyrirtækja sem svíkja undan skatti eins og reyndar allir ofangreindir. Hvað fær þjóðin? Ekkert!

Jú, hún fær að borga okurvexti fyrir að búa á þessu skeri norður á hjara sem eru verðtryggð okurlán í boði stjórnmálamanna og kvenna, með ónýtum gjaldmiðli sem er minna virði en Disney dollar.
Þjóðin er ofursköttuð í bak og fyrir og fær ekkert í staðinn fyrir þær greiðslur nema ónýtt heilbrigðiskerfi, ónýtar samgöngur og svo mætti lengi telja, Hæsta matvöruverð í heimi, hæstu eldsneytis og tryggingagjöld í heimi og sömu vaxtakjör og stríðshrjáðar þjóðir eru að greiða.
Niðurstaðan er alltaf sú sama, það er búið að eyðileggja landið og ræna verðmætum þess.
Það eina sem getur bjargað því er að senda afsal til Trump í dag, því þetta er löngu komið gott og er löngu fullreynt.